Vikan - 20.06.2000, Blaðsíða 47
Þórunn Stefánsdóttir þýddi
bauð henni inn en reyndi ekki
að leyna því að Gina var ekki
mjög velkomin.
„Eg hefði ekki þurft að
koma hingað alla leið ef þú
hefðir haft fyrir því að svara
í símann,“ sagði Gina ergi-
lega.
Maggie hafði ekki svarað í
símann frá því á laugardags-
kvöldið til þess að komast hjá
því að tala við Ginu. Það var
greinilegt að Gina var, einu
sinni sem oftar, í skrýtnu
skapi. Maggie velti því fyrir
sér hvað biði hennar núna,
hvort Gina væri reið eða
hvort hún væri í fýlu. Gina var
sérfræðingur í því að mála
skrattann á vegginn út af öll-
um mögulegum og ómögu-
legum hlutum. Maggie var
búin að fá dauðleið á öllum
þessum skapsveiflum og
reyndi ekki lengur að leyna
því. „Það er orðið framorðið
og ég er þreytt. Mig langar
ekki að tala við þig.“
Gina hvítnaði og blánaði á
víxl. „Þú segir annað þegar ég
hef lokið máli mínu og sagt
þér frá öllu sem ég hef kom-
ist að um Dr. Golding sem þú
ert svo hrifin af. Einkaspæjar-
inn sem ég réði hefur komast
að því að hann er ekkert ann-
að en svikari. Hann er skuld-
um vafinn og það munaði
engu að hann fengi ekki að
útskrifast úr læknadeildinni.
Rétt áður en hann útskrifað-
ist kom upp grunur um að
hann hefði borgað einhverj-
um fyrir að skrifa fyrir sig
lokaritgerðina, en það var
ekki hægt að sanna það.“
Það suðaði fyrir eyrunum
á Maggie.
„Ekki nóg með það,“ hélt
Gina áfram sigri hrósandi.
„Hann komst líka að því að
það er búið að kæra lækninn
fyrir ritstuld. Hann er sakað-
ur um að stela hugmyndinni
að síðustu bókinni sinni frá
starfsfélaga sínum.“
Maggie hristi höfuðið.
Þetta var allt of ótrúlegt til
þess að geta verið satt.
„Síðast en ekki síst hefur
hann dregið undan skatti.
Hann lætur sem allur ágóði af
bókunum hans renni til góð-
gerðarfélags sem konan hans
er í forsvari fyrir. En sannleik-
urinn er sá að góðgerðarfé-
lagið hefur aldrei fengið
krónu. Líklega endar hann í
fangelsi.“
Maggie heyrði bara eitt orð
af allri þessari löngu ræðu.
Hún gekk að sófanum og sett-
ist niður. „Konan hans?“
Gina horði á Maggie með
vorkunnaraugum.
„Já, Maggie. Konan hans.
Þú hefðir komist að því að
hann er giftur ef þú hefðir
haft fyrir því að lesa bókina
um þriggj a vikna meðferðina.
A fremstu síðunni stendur:
„Þessi bók er tileinkuð kon-
unni minni, Monicu.“
Maggie heyrði ekki meira.
Hún lagði höfuðið á hnén,
eins og hún hafði gert fyrsta
daginn á læknastofu Dr.
Golding og hágrét.
lesendaleihur Vikunnar 09 Pfaff
Lesendaleikur Vik-
unnar hefur alltaf
verið feikilega vin-
sæll og lesendur
okkar hafa verið duglegir að
senda inn lausnir.
Dregið er mánaðarlega í
leiknum. Til mikils er að
vinna og vinningshafar hafa
verið afar ánægðir enda hafa
vinningarnir alltaf verið
glæsilegir.
Nú höldum við lesenda-
leiknum áfram með Pfaff og
reglurnar eru enn sem fyrr
þessar:
Safnið þrem hornum fram-
an af forsíðu Vikunnar.
Þegar þið hafið safnað
þrem merktum forsíðuhorn-
um skulið þið senda okkur
þau ásamt nafni, heimilis-
fangi, kennitölu og símanúm-
eri.
Dregið er úr innsendum
umslögum um hver mánaða-
mót, hringt í vinningshafann
og honum sent gjafabréf sem
jafnframt er ávísun á vinning-
inn.
Merkið umslagið:
Vikan, Lesendaleikur
Seljauegi 2,
121 Reykjavík
Taktu kátt í Lesenda-
leiknum! Sendu inn
Ijrju forsíðuhorn af
Vikunni fyrir 4. júlí
og hú gætir eignast
hessa frábæru
saumavél frá Pfaff.
Glæsilegur vinningur í Lesendaleik
Vikunnar og Pfaff í júní:
Þessi myndarlega saumavél er ekki aðeins þarfur gripur sem getur sparað heimilinu fé, heldur getur
hún verið uppspretta mikillar ánægju fyrir þá sem hafa gaman af að skapa fallega og persónulega
hluti, þ.m.t. fatnað. Pfaff Hobby saumavélin er með 15 sporum og hún hefur þar á meðal overlock-
spor og stillingu fyrir hnappagatasaum. Hún er mjög auðveld í meðförum og auðvelt er að stilla
hana, enda hefur hún fengið frábæra dóma eigenda. Pfaff Hobby 309 saumavélinni fylgir íslenskur
leiðarvísir og að sjálfsögðu hin rómaða Pfaff þjónusta.
Vikan
47