Vikan


Vikan - 20.06.2000, Blaðsíða 11

Vikan - 20.06.2000, Blaðsíða 11
 ( iv : - Dómkirkjan í Flórens er ein al þeim bygging- “.?4'v um sem fara ekki fram hjá þeim sem lieim- sækia borgina. Flórcns ’ • er sú borg a Italm sem . verður að heimsækja. Peim sem hafa takmarkað- an tíma til ferðalaga er ráðlagt af fróðu fólki að gera áætlun um hvað skuli sjá og gera í landi eins og Ítalíu. í einu tilfelli, þar sem um tveggja vikna flakk var að ræða af bestu gerð á Ítalíu, var sest yfir kort og bæk- ur og þegnar ráðleggingar þeirra sem vel þekkja til. Ákveðið var að fljúga til Mílanó, fara þaðan niður vesturströndina til bæjarins Santa Margarita áleiðis til Toscanahéraðs en hluti af Toscana skyldi jafnframt frekar kannaður í lítilli mótorhjólaferð sem alltaf hafði verið draumur- inn. Ráðleggingar allra reyndust óbrigðular og mótorhjólaferðin draumur á allan hátt. Ferðahandbókin Lonely Planet mælir með því að á einni viku á Ítalíu sé farið til borgarinn- ar Flórens með frekari ferðum um Toscana til borgarinnar Siena og San Gimignano. Sú ferð gef- ur góða mynd af töfrum héraðs- ins á allan hátt, hvort sem menn vilja sjá einstakt landsvæði eða borða einstakan mat. Flórens er sú borg sem verður að heimsækja sé farið til Ítalíu, enda fáar borg- ir í heiminum jafnríkar af sögu, menningu og listum. Það má gefa sér nokkra daga á göngu um borgina en þegar hungrið sækir að skal mælt með veitingastöð- unum Paoli, Antico Ristorante (Via Tavolini 12, sími: 0552- 16215) og Trattoria Bordino (Via Stracciatella 9R. sími: 0552- 13048). Hótel Victoria (eigand- inn Danilo er mjög hjálplegur ís- lendingum) á Via Nationale 102 Red. er á besta stað í borginni og góður gististaður (sími: 0552- 87019). Pað er skynsamlegra og betra, með tilliti til umferðar, ef stefnt er að því að ferðast á mótorhjóli um þetta svæði, að hefja förina í Siena. (Tekið skal fram að mót- orhjólapróf frá íslandi þarf til að leigja mótorhjól en venjulegt ökupróf er nóg til að leigja minni eða stærri vespur sem reynast víst ótrúlega vel). Mótorhjóla- og vespuleiga á Parka Calizza í Si- ena er góð með liðlegum eiganda (sími: 0557-288387). Siena er best varðveitta miðaldaborg Ítalíu. Hún er byggð á þremur hæðum og prýdd sögufrægum, gotnesk- um byggingum sem ekki skal láta fram hjá sér fara. Mjög auðvelt er að komast út úr Siena og á sveita- vegina (No 2 í þessu tilfelli) til þess að halda í norðvestur til borgarinnar San Gimignano. Á leið þangað eru mörg tækifæri til þess að staldra við, fá sér drykk og mat og njóta útsýnisins og bærinn Monteriggioni er tilval- inn til þess. Hann er byggður inn- an virkisveggja, er sérstaklega smágerður allur vegna þess og taldist hluti af þeirri leið sem tengdi Róm við Norður-Evrópu á miðöldum. Útsýnið frá Monteriggioni er fallegt og sést yfir víðar lendur Toscana en það betra komið er til „Litlu Manhattan“ eða bæjarins San Gimignano. Það eru fáir staðir á Italíu sem búa yfir jafn mikilli fegurð og San Gimignano, sem er bær sem nán- ast ekkert hefur breyst frá mið- öldum. Þessi litli bær, sem stend- ur uppi á hárri hæð, er þekktur fyrir turnana sína (14 af 72 turn- um standa enn) en þeir voru tákn um sterka stöðu bæjarins á ntið- öldum. Það eru bleikir, grænir og gylltir tónar náttúrunnar sem umlykja San Gimignano sem og allt það svæði sem keyrt er um þegar farið er í gegnum litla og fallega bæi eins og Colle di Val dTilsa og Casole d'Elsa. Það var þar sem lagst var til svefns en tek- ið skal fram að á þessari leið frá Siena er um mjög marga góða gististaði að ræða. Þeir eru í sama gæðaflokki og Hotel Gemini (Casole d'Elsa 53031, sími: 0577- 948622, fax: 0577-948241) en þar er óhætt að mæla með frábærum mat. Sama má segja um hótelí- búðirnar á II Colombaio (Casole d'Elsa 53031, sími: 0577-948453, fax: 055-8720359) en sá gististað- ur er glæsilegur með öllum hugs- anlegum þægindum á góðu verði. Ekki má gleyma að nefna veit- ingastaðinn við þennan hótelí- búðakjarna en hann er eins „ekta“ ítalskur og hugsast getur með „mömmu“ í eldhúsinu. Frá Casole d'Elsa var aftur haldið til Siena á hægagangi á mótorhjólinu og hringnum þar með lokað. Þessi mótorhjólaferð var á enda en margar fleiri eru fram undari eftir lítið ferðalag um sannkallað draumaland. Frá Si- ena var haldið til Bologna til að borða spagettí og þaðan til Fen- eyjasem er sérkafli út af fyrir sig. ítalir segja besla mat í lieiini vera „heima“. Það eru fleiri á þeirri skoðun að ítalskur niatur sé góður og á fcrðalagi uni sveitir Italíu fær niaður einniitt einn besta niat sem niaður getur liugsað sér. Texti: Halla Bára Gestsdóttir Myndir: Gunnar Sverrisson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.