Vikan - 20.06.2000, Qupperneq 52
Heilsumolar
Þena
mánaðarlega
Tíöablæöingar kvenna
þykja einstaklega spenn-
andi rannsóknarefni meö-
al vísindamannaef marka
má viðamiklar rannsóknir
sem þeir hafa gert á und-
anförnum árum. Konur
sem læröu líffræöi í grunn-
skóla fyrir tuttugu árum
síðan og jafnvel fyrr, fengu
þær uppiýsingar að blæð-
ingarnarkæmuáfjögurra
vikna fresti og stæðu yfir
í 5-7 daga. Frekari útskýr-
ingar var ekki að finna í
gömlu líffræðinni og
margar mæður voru
feimnar við að ræða þessi
mál við dæturnar. Hver þekkir t.d. ekki nafnið Rósa frænka?
En nú er öldin önnur og mikið af þekkingu hefur bæst í viskubrunn
vísindamanna. Alþjóða heilbrigðismálastofunin (WHO) stóð nýlega
fyrir rannsókn á tíðablæðingaferlinu. Yfir 1000 konur á aldrinum
15 til 49 ára tóku þátt í henni og kom þetta meðal annars fram í
niðurstöðunum:
• Á milli blæðinga liðu 24-42 dagar sem telst alveg eðlilegt. Þar
kom líka fram að tíminn á milli getur bæði verið lengri og styttri.
• í flestum tilfellum stóðu blæðingarnar yfir í 6 daga.
• Það var mjög misjafnt hvort konurnar höfðu reglulegar blæðing-
ar. Konur eldri en 44 ára höfðu mjög óreglulegar blæðingar en
yngsti aldurshópurinn hafði einna reglulegustu blæðingarnar.
• Ýmis lyf við tíðablæðingaverkjum voru nef nd til sögunnar en Ibu-
fen virtist hjálpa konunum einna mest. Það reyndist áhrifarík-
ast að taka það um leið og blæðingarnar byrjuðu, þrátt fyrir að
verkjanna væri ekki farið að gæta. Ef konurnar höfðu regluleg-
ar blæðingar en fengu mikla verki reyndist vel að taka Ibufen
daginn áður en þær áttu að byrja á blæðingum. Þannig tókst
þeim helst að fyrirbyggja verkina.
;
Vikaii
Hvernig stendur á því að góða ilmvatnið, sem vinkona þín notar, lyktar hræðilega þegar þú úðar því
á þig? Lyktin sem myndast er háð sýrustigi húðarinnar sem getur verið mjög mismunandi. Ilmur
er oft flokkaður niður í fjóra flokka, blómailm, sítrusilm, seiðandi ilm og sápuilm. Lyktin af þeim
sem bera á sig sítrus- og blómailmvötn geta verið afar ólík, hún er algjörlega háð sýrustigi húðar-
innar. Seiðandi ilmvötn og svokölluð sápuilmvötn eru ekki eins háð sýrustiginu og því meiri mögu-
leikar á að vinkonur geti notað sama ilmvatnið ef það tilheyrir þessum síðarnefndu flokkum.
Andaðu rólega
Nútímakonan, sem nær aldrei að slaka á fyrr en hún er lögst upp í rúmið sitt eftir miðnætti, er
í gífurlega mikilli hættu að fá alls kyns streitusjúkdóma. Allt of margar konur ofkeyra sig í
vinnu, eiginkonu- og móðurhlutverkinu og eru orðnar heilsulausar langt um aldur fram. Ef þú
ert að drukkna í verkefnum, sem þú sérð varla fram úr, er kominn tími til að þú gefir sjálfri þér
tíma til að slaka á í smástund daglega. Þú átt það svo sannarlega skilið. Ef þú kemst í líkams-
rækt þá er það mjög góð leið til að gleyma amstri dagsins og safna kröftum. Ef þú átt erfitt
með að komast svo lengi frá, þá getur stutt gönguferð nálægt
vinnustaðnum gert mikið fyrir þig. Þegar þú kemur
heim, skaltu fara í notalegt bað eða sturtu, slökkva
á símunum og einbeita þér að einu í einu. Ef þín
bíða börn og maður heima fyrir vertu búin að und-
irbúa heimkomuna í huganum. Settu ákveðin
verkefni í forgang en láttu hin eiga sig sem mega
bíða, það kemur dagur eftir þennan dag. Allt of
margar konur hlaða á sig verkefnum sem þær
gætu hæglega látið aðra um. Hvernig væri að
virkja sína nánustu og treysta þeim fyrir tiltekn-
um verkefnum? Taktu frá eitt kvöld í viku, þar
sem þú getur átt notalega kvöldstund heima,
farið í heimsóknir eða haft það huggulegt með
manninum þínum. Ekki gleyma sjálfri þér í iífs-
gæðakapphlaupinu. Það er enginn annar en
þú sem getur passað upp á þig og heilsuna
Sorglegar staoreyndir
Heimilisstörfin eru án efa vanþakklátustu störf
heimsins. Það er sorglegt að hugsa til þess
hversu mörgum klukkustundum hver kona (já, í
90% tilfella þurfa þær að sinna þeim) eyðir í þessi
leiðindarstörf í hverri viku. Samkvæmt könnunum
lítur út fyrir að húsmóðir með fjögurra manna fjöl
skyldu eyði 20 klukkutímum á viku i heimilisstörfin
þótt hún vinni utan heimilisins. Ef við heimfærum þessa tölu á almennan vinnumarkað, þá er
þetta 50% starf, sveigjanlegur vinnutími en launin eru engin, nema þá helst vanþakklæti. Það
má samt ekki gera lítið úr þeim karlmönnum sem sinna heimilisstörfum til jafns við konurnar
en því miður virðast þeir vera of fáir. Til að móðga engan þá skal tekið fram að þessi könnun
var gerð á meðal kvenna sem unnu úti allan daginn, rétt eins og eiginmennirnir. í þessari
sömu könnun kom fram að þrjár af hverjum fjórum konum fengu einhverja aðstoð við heimil-
isstörfin. oftast frá börnunum, en 39% þeirra sögðust fá hjálp frá mönnunum sínum ef þær bæðu
þá um aðstoð. Æ, æ, æ hvar er jafnréttið?