Vikan


Vikan - 07.11.2000, Qupperneq 65

Vikan - 07.11.2000, Qupperneq 65
Þórunn Stefánsdóttir þýddi bæla niður þutu gegnum huga hennar. Myndir af Daniel og Patriciu saman í rúminu og myndir af Daniel eins og hún sjálf hafði kynnst honum kvöld- inu áður. Myndir af honum þeg- ar hann vaknaði, horfði á kon- una sem svaf við hliðina á hon- um og teygði sig eftir símanum til þess að láta vita að honum seinkaði. Það var svo auðvelt fyrir hann að láta sem hann væri að heimsækja hana sem skjól- stæðing þótt hann væri raun- verulega ... Hún kyngdi og ákvað að vera óvægin við sjálfa sig: Haltu áfram, viðurkenndu það.... við- urkenndu það ... ígærkvöldi fór hann beint úr faðmi þínum til hennar. Hann eyddi nóttinni með henni og það var ekki einu sinni nóg. Hann gat ekki slitið sig frá henni í morgun. Sársaukinn var erfiðari en nokkuðsem hún hafði upplifað. Hann brenndi hörund hennarog skein úr augum hennar. Anne virti hana fyrir sér þegar hún komtil baka meðvatnsglasiðog sagði ákveðin: ,,Það er alveg hræðilegt að sjá þig. Ertu viss um að þú ...?“ ,,Ég er með svolítinn höfuð- verk, það er allt og sumt," svar- aði Charlotte. Að lokum tókst henni að sannfæra Anne um að sér liði miklu betur. Hún velti því samt fyrir sér hvort hún ætti ekki að grípa tækifærið, segj- ast vera veik og ætla að fara heim. Hún hefði greinilega smitast af flensunni sem var að ganga. Það er ekki of seint, sagði hún við sjálfa sig. Hún gæti staðið upp frá skrifborðinu og farið heim. Anne gæti staðfest veik- indi hennar ef einhver spyrði um hana. Ef til vill gæti hún tekið sig saman í andlitinu ef hún yrði heima í nokkra daga. Ef til vill gæti hún komið lífi sínu aftur í fastar skorður. Hún ætlaði að fara að standa upp þegar dyrnar opnuðust og Daniel stóð í gættinni. ,,Charlotte, ég þarf að tala við þig-“ Hún heyrði það strax á rödd- inni að hann ætlaði ekki að tala um vinnuna. Hvað skyldi hann vilja segja mér? hugsaði hún biturlega. Að það sem gerðist kvöldið áður hafi verið mistök? Að hann yrði henni þakklátur ef hún gæti lát- ið sem ekkert hefði gerst? Gott og vel, tveir gátu leikið þennan leik. Hún stóð upp og sneri sérfrá honum. Neglurnar grófust inn í lófa hennar þegar hún barðist við að halda rödd- inni eðlilegri. ,,Ef þú ætlartala um það sem gerðist í gærkvöldi er það al- gjör óþarfi," sagði hún. „Charlotte ..." Hún lét sem hún heyrði ekki skipunina í rödd hans og hélt áfram. „Við erum fullorðiðfólk. Það sem gerðist var ... ég verð að vera heiðarleg við þig, jafn- vel þótt ég sé hrædd um að við höfum gengið aðeins of langt. Ég vartrúlofuð, einsog ég sagði Richard þegar ég byrjaði að vinna hérna. Við Bevan slitum trúlofuninni fyrir nokkrum mán- uðum ... mér þykir leittað verða að viðurkenna það en ... satt að segja saknaði ég Bevans, fyrrverandi kærasta míns, í gær- kvöldi þannig að ... það sem gerðist á milli okkar hafði ekk- ert með þig að gera ... það var eingöngu kynferðislegt." Charlaotte kveinkaði sér, hún lagði það ekki í vana sinn að skrökva en í þetta sinn neydd- isthúntil þess, stoltsins vegna. Hún gat ekki og vildi ekki leyfa Daniel að verða fyrri til þess að segja að hún skipti hann engu máli. Hún fann kæfandi þögnina umlykja sig og svo sagði Dani- el. „Ertu að segja mér að þú hafir notað mig sem staðgengil fyrir fyrrverandi kærastann þinn? Þegar þú snertir mig ... kysstir mig ... varstu þá í raun og veru að hugsa um þennan Bevan?" Charlotte bað til Guðs að rödd hans bærist ekki um allt hús- ið. LASH SILK er nýjasta framförin í augnháralit með tvöfaldri virkni. LASH SILK samsetningin er vítamínbætt með Pro-vitamín B5, sem gengur inn í augnhárin og gerir þau mjúk og sveigjanleg. LASH SILK hefur fínar litaagnir sem tryggja góða þekju og glæsilega áferð. Að lokum er burstinn sérstaklega hannaður í boga svo auðvelt er að bretta augnhárin fallega upp á við. Með því að nota LASH SILK fá augnhárin glæsilega silkiáferð. Réttur maskari fyrir mismunandi útlit. Fyrir silkimjúk augnhár: Max Factor Lash Silk Mascara. Fyrir 200% þykkingu: Max Factor 2000 Calorie Mascara. Fyrir aðlaðandi, löngaugnhár: Max Factor Stretch Mascara. Fyrir heilsuræktina: Max Factor Aqua Lash Mascara ■ vatnsheldur. Kvikmyndir þar sem Max Factor hefur séð um förðun eru m.a.: Notting Hill, Titanic, The English Patient, Evita, Ever After, Bugsy Malone, Alien, Interview With a Vampire, Midnight Express, Anna and the King ... Útsölustaðir: Snyrtivöruverslanir og apótek. Dreifing Medico ehf.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.