Menntamál - 01.04.1931, Qupperneq 4

Menntamál - 01.04.1931, Qupperneq 4
50 MENNTAMÁL á elliár var hanu í mörgum efnum tryggur hugsjónum Rouss- eaus. Víða bætir hann við hugmyndir hans, annars staðar breytir hann til og lagfærir, yfirleitt alstaðar til bóta fyrir kenningar uppeldisfræðinnar. Rousseau, hinn mikli aðdáandi náttúrunnar, er höfundur að Contrat social, en þaðan fékk íranska stjórnarbyltingin eink- unnarorð sín: „frelsi, jafnrétti, bræðralag“. í ritinu Emile lýsir hann uppeldi rikismannssonar. „Fátæklingarnir þurfa ekkert uppeldi," segir hann þar á einum stað. Enda þótt skoðanirnar séu harla ólíkar í Contrat social og í Emile, má ekki skilja þessi orð Rousseaus um fátæklingana svo, að hann vilji með þeim litilsvirða kröfur þeirra um mannsæmandi þroskun og uppeldi. Hann litur svo á, að fátæklingurinn sé í svo nánu sambandi við náttúruna, að hann geti notið heilbrigðs uppeldis án tilverknaðar mannanna. Réttara væri þó ef til vill að segja, að þetta sé skoðun hans að nokkru leyti. Sjálfsagt hefir hann skilið til fullnustu, hversu mikilsvert og erfitt vandamál hér var um að ræða, og orð hans um fátæklingana er ekki lausn málsins, heldur fjarstæða. Sú spurning, hvernig eigi að ala upp fátæklingana, svo að þeir verði að manni, var höfuðatriði uppeldismálanna í huga Pestalozzi. Þá spurningu glínn'r hann við alla sína æfi. Hjá honum eru uppeldismálin, öllu fremur en hjá Rousseau, ná- tengd viðleitni hans til umbóta þjóðskipulagsins. Menn hafa nefnt hann höfnnd hins þjóðfclagslcga uppcldis. Ekki þó svo að skilja, að hann gleymi persónulegri þroskaþörf einstakling- anna og setji þörf jjjóðfélagsins á hæfum borgurum yfir all- ar kröfur uppeldismálanna. En hann var fyrstur manna til þess, að reyna að gera ljósa grein fyrir sambandi því, sem er milli viðfangsefna þjóðfélagsmálanna og uppeldismálanna. Hann treystir ekki á þann möguleika, að hægt verði í fyrirsjáanlegri framtíð að skapa almenna velmegun, en hann leitar að bjarg- ráðum þeim til handa, sem liggur við andlegri drukknun í hvik- syndi örbirgðarinnar. Enda þótt hann væri hlálega vanhygg- inn oft og einatt í daglegu líferni sínu — og jafnvel í hug-

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.