Menntamál - 01.04.1931, Blaðsíða 13
MENNTAMÁL
59
Þessum litlu nemendum ungbarnadeildanna er sinnt eins og
börnum á beztu heimilum og að sumu leyti betur.
Er hlé verSur á leikjum og starfi, fá börnin hressingu. Sum
eru mötuð á hunangi, en önnur fá sér brauðbita eða ávexti.
Þau börnin, sem þyrst eru, drekka sér mjólkursopa. Enn ein
sofa i litlu rúmunum og safna kröftum.
Hér verður gesturinn ekki var við óánægju. Öll börnin hafa
nóg að starfa, þegar þau eru vakandi. Leitast er við að full-
nægja starfslöngun barnanna, og þess vegna er gleðin og ánægj-
an yfirgnæfandi.
Fósturskólar eru nauðsynlegastir þar sem of margir menn
þyrpast saman, eins og í þorpum, kauptúnum og Irorgum. Þar
vill Ijresta á að heimilin séu eins góð og þau ættu að vera.
Foreldrarnir eru oft mestan hluta dagsins fjarri heimilum sín-
um. Þar sem fátækin er mikil, og eitthvað til að gera, vinna
báðir foreldrar utan heimilis, eru þá börnin í reiðileysi.
Þörf væri á fósturskólum í Reykjavík, og ef til vill víðar
hér á landi.
Smábarnaskólar. Ensk börn eru skólaskyld frá fimm ára
aldri til fjórtán ára aldurs. Fimm og sex ára nemendur eru
í smábarnadeitdunúm. Þessir ungu nemar eru látnir syngja
mikið, leika og dansa. Fellur þeim þetta skólalíf mætavel, og er
bros á hverju andliti. Kennslukonurnar leika á slaghörpu, en
börnin syngja ljóð. Læra þau þarna að leika daglega viðburði.
sem gerast í kringum þau. Syngja þau og leika þyt golunnar,
hvin stormsins, hvískur regnsins, skrölt vagnanna, blístur eim-
lestarinnar og svo framvegis. Þá syngja þau og leika smá-
kvæði, sem skýra frá viðburðum og æfintýrum við barna hæfi.
Gleyma þau sér i fögnuði skólalifsins. Daglegu störfin í skól-
unum eru þeim gleðirík og unaðsleg. Oft er skiít um verkefni.
Kennslustundir eru aðeins tuttugu mínútur fyrir þessi ungu
börn.
Allmikinn hluta skólaársins standa hagar og akrar, garðar og
grundir í blóma á Englandi. Vor og sumar eru börnin mikið
úti. Er ánægjulegt og ávaxtaríkt að kenna undir berum himni