Menntamál - 01.04.1931, Blaðsíða 9

Menntamál - 01.04.1931, Blaðsíða 9
MENNTAMÁL 55 dreng, sem hafÖi mjög mikið gaman af ÓdysseifskviÖu, og meðal annars af þeirri reynslu varð hann fylgismaður þeirrar skoðunar, að grísku og sögu Forngrikkja ætti að lesa i fyrstu bekkjum lærðu skólanna. Þá tæki við latína og saga Rómverja, og loks í efstu bekkjunum yrði lesin saga síðari tíma og nú- tíðarmálin. Uppeldiskenningar Herbarts vöktu ekki almenna athygli fyrr en á síðari hluta 19. aldar, þegar Ziller tók þær upp aftur í nokkuð l)reyttri mynd. Ziller (1817—1882) hagnýtti út i yztu æsar kenningarnar um samband námsgreina og menningarstigin, og gekk hann þar miklu lengra en Herbart. Honum var það ennþá hugleiknara en Herbart, að færa allt í skipulagsbundin kerfi. Þær greinar, sem hann taldi bezt fallnar til þroskunar skapgerðinni, voru trúarlærdómur, saga, bókmenntir, og ]rær lét hann skipa öndvegi á námsskrá sinni. Aðrar greinar voru fyrst og fremst ætlaðar þessum aðalgreinum til stuðnings, og þá eink- um trúarbragðafræðslunni. Þegar um það var rætt í biblíusög- unum, að Sara var grafin í kalkklett, átti að grípa inn i nátt- úrufræðina og tala um kalksteininn. Og' þegar minnzt var á gullhring Rebekku, þótti það vel við eiga að lýsa eðli gullsins. Ziller hendir á lofti nokkrar almennar athugasemdir hjá Her- bart og leggur þær til grundvallar þeirri kenningu sinni, að hver einasta kennslustund eigi að vera viss liður í skipulags- bundnu kerfi. Einn af lærisveinum Pestalozzi var Fröbel (1782—1852), höfundur barnagarðanna. í starfi sínu og ritum sýndi hann og sannaði, hversu mikla þýðingu handavinnan og átthagaþekk- ingin hefir fyrir sálarþroskann. Og leikhneigð barnanna gaf hann meiri gætur en nokkur hafði gert áður; i því gekk hann feti framar en Rousseau. Eðli barnaleikja var honum ekki full- komlega ljóst, þótt hann gerði sér far um að skilja það. Það var ekki fyrr en í aldarlokin, að Groos rannsakaði það efni til nokkurrar hlítar. Þær rannsóknir studdi hann við sálfræðilegar athuganir á mönnum og dýrum. Hann komst að þeirri niður- stöðu, að leikir barna og dýraungviðis væri ósjálfráðar æfing-

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.