Menntamál - 01.04.1931, Qupperneq 10

Menntamál - 01.04.1931, Qupperneq 10
56 MENNTAMÁL ar í líkamlegri og andlegri leikni, sem væri e'Sa hefði veriÖ ein- staklingnum eða tegundinni til gagns. Um þetta hefir Stcrn sagt svo: „Leikurinn er árgeisli alvörunnar". 1 lok nítjándu aldar er samskólaniálið aSalviÖfangsefni upp- eldisfræðinganna. Uppkoma þess stóS í sambandi viÖ kven- frelsishreyfinguna og þá trú manna, aÖ drengir og telpur væru andlega skyldari en menn áÖur héldu. Eftir aÖ samskólarnir höföu náÖ mikilli útbreiÖslu i byrjun þessarar aldar, hættu menn öllum deilum um þá um stund. En nú á síðustu árum hafa þær deilur hafist aftur. Stafa þær aÖ nokkru leyti af vissum sálfræðilegum rannsóknum á börnurn og unglingum, en að nokkru leyti risu þær af því, að menn vilja vinna samskólunum enn meiri útbreiðslu en þeir nú hafa. Þó mætti segja, að smábarnafrccðslan, sem helzt í hendur við aukið lýðfrelsi, sé aðalviðfangsefnið nú i hinu ytra skipu- lagi skólamálanna. Þá má nefna eitt, sem einkum er bundið hinu innra lífi fræðslustarfsins, skólanna og heimilanna. Það er tilraun sú, sem gerð hefir verið til þess að auka listrœnt gildi uppeldisins. Sú hugmynd er áður þekkt hjá fornmenntastefnunni nýju og í uppeldisfræði Herbarts. En í tillögum Ruskins um uppeldis- mál er enn meiri áherzla lögð á þetta efni. Handiðnaðurinn forni, sem kynslóð eftir kynslóð lagði sig í lima viÖ að betra og fegra, unz hann hafÖi náð miklu fegurðargildi — hann varð að vikja úr vegi um miðja síðustu öld, og í hans stað tók við fegurðarsnauður vélaiðnaður. Það var ætlun Ruskins, að end- urlifga handiðnaðinn forna. Og það var Ruskin að þakka, að áhugi margra enskra uppeldisfræðinga vaknaði um þessa hluti undir aldamótin síðustu. Og það voru ekki aðeins nytsamar listir, sem áhugi þeirra beindist að, heldur einnig fagrar listir, í þrengri merkingu þeirra orða. í byrjun 20. aldar var mikið rætt um listrænt uppeldi. Það var ein aðaltillagan til endur- bóta í uppeldismálum í öllum hinum vestræna menningarheimi. Inn í þær umræður og deilur drógust meðal annars ýmsir helztu

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.