Menntamál - 01.04.1931, Side 12

Menntamál - 01.04.1931, Side 12
58 MENNTAMÁL tíma, er vaxandi áhugi i heilbrigðismálum. Skólalæknar og hjúkrunarkonur eru óþekkt fyrirhrigði fyrr en á 20. öld. í þessu yfirliti hefir mörgu markverÖu veriÖ sleppt. Eg hefi aÖeins viljaÖ nota mér þennan sögulega þráÖ til þess að drepa á nokkur aðalviðfangsefni í skólamálum nútímans. Með því að benda á sögulegar staðreyndir, hefir unnizt meðal annars það, að þeir lesendur, sem enga skólasögu hafa lesið, hljóta að sjá það og finna, að setningin gamla: „ekkert er nýtt undir sólunni", á ekki síður við í uppeldismálum en á öðrum svið- um andlegra efna; enda þótt hún eigi ekki við að fullu og öllu. Allar hugmyndir eiga rót sína að rekja til þess löngu liðna, en þær breytast og umskapast eftir því sem stundir líða. Fr. G. þýddi úr: Skolpedagogikens huvudfrágor, eftir A. Lilius. Ensk skólamál. Þótt margir kennarar, konur og karlar, fari nú utan, þá eru þeir fleiri, sem heirna sitja. Bíða þeir þess að hleypa heimdrag- anum. Þeir taka þakksamlega fregnum frá umheiminum. Skal hér drepið á nokkur atriði úr skólalifi Englendinga. Fósturskólar. Yngstu nemendur í sumum barnaskólunum eru aðeins tveggja, þriggja, og fjögra ára að aldri. Gæta fóstrur of kennslukonur barna þessara. Skólastofurnar eru stórar og Itjartar. Margir munir eru inni. Þar eru bekkir, horð og rúm. Eru þessi húsgögn með veggjunum, svo að svigrúm sé meira á miðju gólfi. Smáfólkið þarf allmikið rými, ]tvi að ekki er haldið kyrru fj'rir milli hvíldanna. Þarna inni eru leikföng mörg, kuhbar, brúður, vagnar, spaðar og ýmislegt’ fleira. Svona ungir nemendur ]>urfa að fá sér dúr, meðan á skólatíma stendur. Eru haglega gerð lausarúm handa þeim. Skólatími er frá klukk- an níu að morgni, þangað til klukkan fjögur eftir hádegi. Fylgja verður yngstu börnunum í skólann og heim aftur. Gera það eldri systkini þeirra, þjónustufólk eða nágrannabörn.

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.