Menntamál - 01.04.1931, Side 14

Menntamál - 01.04.1931, Side 14
6o MENNTAMÁL í skrúði náttúrunnar. Góðir haustdagar eru einnig notaðir til útivistar. Oft fara þessi ungu börn út með kennurum sínum, til þess að viða að sér blómum, hrísluöngum eða berjaklóm. Ýmist er farið langt eða skammt eftir þessu. Þegar svo kom- ið er inn i skólana, fær hvert barn í hendur blöðku, blóm eða kvist. Byrjar nú samtal um j)etta, sem börnin hafa handa á milli. Segja börnin kennurum heiti jress, sem jrau eru með. Rita kennararnir nafn jurtarhlutarins stórum störfum á skóla- spjöldin. Börnin reyna að líkja eftir stöfunum, Mörgum jreirra tekst jrað furðulega vel. Þá teikna kennararnir blómið, láöðk- una eða kvistinn. Leika börnin ])að eftir. Gera sum þeirra jmð mjög laglega. Þarna læra börnin í senn náttúrufræði, skrift, hljóð, lestur og teikningu. Kennararnir láta börnin fyrst læra hljóðin, en síðar að jrekkja staf-merkin. Þá læra jiessi litlu börn að skrifa tölustafi og reikna. Eru hlutir hafðir við hend- ina, svo að börnin skilji betur, hvað jjau eru að gera. Hefir hvert barn hjá sér blað, ritblý og smáhluti. Ekki er það lítið eftir hæfi barnanna, að fá að móta leir- inn og búa til ýmsa muni. Er furðulegt, hve börn á þessum aldri eru listfeng og gera jjetta haglega. Mikið er gert að j)ví að láta börnin klippa eitt og annað úr mislitum pappír. Klippa þau smáhluti, blóm, dýramyndir, hús og fleira. Líma ]>au þetta á öðru vísi litan pappír en úrklippurnar eru. Þykir börnunum mjög ánægjulegt að nostra jjetta og láta allt fara sem bezt. Æfa jjau j)arna marga hæfileika í senn og njóta glöð og ánægð skólalífsins. Leiksvæði nýju skólanna eru bæði stór og hentug. Þar er leikfimi kennd og útileikir eru iðkaðir. Börn eru lítið höfð inni í skólum jjessum, jjegar góðviðri eru, og er margt til að sýna þeim. Staðir eru hingað og jjangað í borgum og utan þeirra, sem eftirsóknarvert er fyrir börnin að skoða. Dvelja þau þar, leika og læra. Framkvæmd. Englendingar eru yfirleitt bænræknir. Gætir jjess eins í skólunum og annars staðar. Börnin koma saman í skólasölunum á morgnana. Eru j)ar sungnir sálmar og flutt- ar bænir. Athöfnum jjessum stýra skólastjórar, en einhverjir

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.