Menntamál - 01.04.1931, Side 18
64
MENNTAMÁL
nemendur vel, að þessi kennsla kemur þeim síðar að gagni.
Aftur á móti veitist þeim erfiðara að skilja nytsemi margs ann-
ars, sem kennt er i skólunum.
Hér og þar.
Kennaranámsskeið að Laugarvatni.
Athygli kennara skal vakin á kennaranámsskeiSi því, er lialda á í vor
að Laugarvatni. Sérstaklega skal þó bent á smábarnakennsluna, sem þar
fer fram. Þá kennslu annast þeir Steingrimur Arason og Jón Sigurðsson
kennari við nýja barnaskólann í Rvik. Steingrímur Arason er þjóðkunn-
tir orðinn, svo að ekki þarf að fjölyrða um hann. Jóu Sigurðsson hefir
kynnst nýjustu kennsluaðferðum í Þýzkalandi og Englandi, — hvernig
fljótt má kenna börnum að lesa eftir hinni svonefndu hljóðctðfcrð, sem
margir munu kannast við af afspurn, en sárafáir kunna að nota. Þar eð
nú er allvíða farið að færa niður skólaskyldualdur itarna, þá er ekki van-
þörf á að kennarar kynnist eftir mætti þeim nýjungum, sem að gagni
mættu koma við kennsluna. Ekki mundi það heldur verða til þess að
að tefja fyrir niðurfærslu skólaskyldu, ef vitanlegt væri, að fyrir hendi
væru kennarar, sem kynnu að kenna smábörnum.
Leiðrétting.
f 2. tölublaði Menntamála ]t. á. var getið um teiknikennslu Björns
Björnssonar kennara. Vegna ókunnugleika greinarhöf. var ekki rétt skýrt
frá tildrögum til þessarar kennslu. Það var stjórn hins nýja stéttarfélags
kennara í Reykjavík sem fór þess á leit við Björn að kenna kennurum
töfluteikningu. Er þetta lofsverð uppfynding af stjórninni til að hvetja
kennara til að gera sig hæfari i starfi sínu, og er vonandi að stjórninni
takist að verða sem fundvísust á það, sem kennurum mætti verða til
þrifa. En umfram allt þurfa kennarar að taka allt slikt fegins hendi, og
standa saman, og styðja það sem þeim má til gagns verða.
Menntamál. Ver'ð 5 kr. árg. Afgr. í Arnarhvoli. Sími Arnarhvoll.
Félagsprentsmiðjan.