Menntamál - 01.12.1933, Síða 5
MENNTAMÁL
133
Otto SaÍomon dó 9 árum síöar, og" hvila þeir báöir á fögr-
um staö í trjágarðinum bak viö höllina. Einu sinni á hverju
námskeiði er minning þeirra heiðruð með þvi, að allir ganga
í hátíðlegri skrúðgöngu að leiðinu, og blómsveigur er lagð-
ur á það.
Forstöðumaður Náás-skólans nú er dr. Rurik Holm. Þessi
hámenntaði og duglegi maður hefir leitt starfið full 20 síð-
ustu árin. Undir yfirumsjón hans starfar svo heill hópur
úrvalskennara, sem hafa fullkomnað sig hver í sinni sérgrein.
2—300 nemendur sækja hvert námskeið. Þar eru ungmeyjar
og aldraðar piparjómfrúr, piltar með ósprottnar granir og
gamlir, gráhærðir fauskar. Nálægt hálft hundrað af hópnum
eru útlendingar, flestir frá Noregi og nágrannalöndunum; en
oftast eru á Náás kennarar frá 10—15 löndum.
Látum okkur nú svipast um á Náás einn algengan vinnudag.
Kl. 7j4 bggja allir vegir til Vánhem. Þar er matsalurinn.
Frá smáhúsunum viðsvegar í kring, sem sum eru hálfhulin
inni í skóginum, koma hópar af fólki, hjólandi eða gangandi.
Allir stefna að sama punkti: dyrunum á Vánhern. Á eftir þess-
ari morgunmáltíð er gengið í leikhúsið, sem, er spölkorn burtu.
Þar á hver sinn stól, sem hann skal sitja á meðan hann hlýðir
morgunfyrirlestrinum frá kl. 8—9. Nú kemur dr. Holm frá
Björkenáás. (Þaö er húsið hans.) Hann er í svörtum frakka
og fylgir honum mórauður hundur. Meðan dr. Hohn flytur
fyrirlesturinn, sem fjallar annaðhvort um sálfræÖilegt, bók-
legt eða sögulegt efni, liggur hundurinn viö fætur honum og
virðist fylgjast vel með. Á eftir er gengið í röðum með fána
og söng til vinnustaðanna. Flokkarnir skiptast, sumir fara til
Kjállnáás; þar er trésmíða- og fimleikasalur, aðrir til Sem-
inariet; þar eru salir fyrir trésmíðar, vefnað og teikningu.
Einn flokkurinn fer til Smienáás; þar er málmsmiðaverkstæði.
Og loks eru saumastofurnar í höllinni. Þangað gengur að síð-
ustu hópur kvenna.
Brátt lieyrast högg, sagarhljóð og þjalaurg út um glugg-
ana. Menn og konur standa hlið við hlið l)Ogin yfir hefilbekki