Menntamál - 01.12.1933, Síða 19

Menntamál - 01.12.1933, Síða 19
MENNTAMÁL 147 staSa til allverulegra bóta, þar sem sett eru sérstök lög um fræðslufyrirkomulagið og lauu kennara, og styrkur til bygg- ingar skólahúsa utan kaupstaða ákveðinn allt að þriöjungi kostnaSar. Hér í þessari sveit var ástandið svona, eins og- eg hefi áð- ur lýst, fram aÖ árinu 1909. ÞaÖ ár var breytingaár í sögu fræðslufyrirkomulágsins. Þá var af framkvæmdarmönnum sveitarinnar ráSist í aö byggja skólahús, er þá þótti allveg- legt, en sem nú veröur aö þoka fyrir þessu, sem hér hefir ver- iS reist. ÞaS liús kostaSi uni 2000 krónur. Til þeirrar bygging- ar greiddi ríkissjóSur sem styrk um þriSjung kostnaSar, eSa kr. 600,00. Fyrsta kastiS eða fram til ársins 1925 var kennslufyrir- komulagiS meö liku sniöi og áSur, kennt var á 3—4 stöSum í hreppnum, en þó mest í skólahúsinu. ÁriS 1925 var kennslufyrirkomulaginu breytt i fastan heimangönguskóla, og þá kennt allan veturinn á þeim eina stað. ÞaS kom brátt i ljós, er kennt var á einum staS, hve erfitt þaS reyndist í framkvæmdinni. Þess er varla aS vænta, aS utan kaupstaSa sé aSstaöan sú, aS meS góSu móti geti börn, í hvaSa veSri sem er, sótt skólann daglega, meS því aS vera hvert á sínu heimili á næturnar. Skólagangan verSur þaö löng hjá miklum hluta þeirra, a'Ö slíkt er ofætlun og ekki hættulaust á vetrardag, i hvaSa veSri senr er, aS fara aS heiman strax aö rnorgni og koma ekki heim fyrr en dimmt er orSiS. Er mér kunnugt um þaS, aS margri móöurinni hefir ekki veriö rótt, aS vita af börnum sínum í þeim fer'Sum. AS öSru leyti skilja þaS allir, hve sljóvgandi áhrif þaS hefir á sálarkrafta barnsins, og hve mikitS þessi ferðalög draga frá námstímanum, þegar barniS kemur þreytt og hrakiS heim, og á ])á undir þeim skilyrSum aS lesa og undirbúa sig til næsta dags. Þessa agnúa á fyrirkomulaginu sáu margir, og var ])aS aS vonum, aS þeir sem mesta hugsun höföu á aS bæta úr þessu,

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.