Menntamál - 01.12.1950, Qupperneq 9

Menntamál - 01.12.1950, Qupperneq 9
MENNTAMÁL 207 þau lögmál, sem slík sambúð manna hlýtur að vera háð, svo sem virðingu fyrir vilja og séreðli einstaklingsins, kosti samkomulagsins fram yfir ofbeldið og þær reglur, sem lýðræðið hefur f undið til þess að skera úr deilumálum. Ég tek það fram, að ég hef mjög takmarkaða trú á fræði- legri kennslu um þessi efni, heldur hinu, að skólinn sé nemendu,num raunverulegt lýðræðissamfélag, þar sem þeir venjast slíkum félagsháttum og þá vitaskuld í sam- ræmi við félagsþroska sinn á hverju skeiði. Mér virðist það miklu nauðsynlegra mál okkar landi, að ungu fólki lærist að skilja þjóðfélag sitt og kunna að fara þar allra ferða sinna og liggja ekki flatt fyrir hverjum andblæstri gegn lýðræðinu og mér liggur við að segja hinum helgu mannréttindum, sem við höfum öðlazt fyrir baráttu og skilning hinna göfugustu og vitrustu manna Evrópu á und- angengnum öldum, heldur en að allir læri um nafnháttarliði eða kunni skil á því, í hvaða tíðum boðháttur getur komið fyrir, þótt það geti verið merkilegt mál fyrir fræðimenn um þau efni. Mér er gjarnt að líta svo á, að vanræksla um félagslegt uppeldi stafi af íhaldsemi skólanna. Um 1880 var slíkt uppeldi ekki neitt svipað því jafnaðkallandi mál og nú, en hins vegar var námsskrá skólanna fullskipuð. Og það, sem kemst einu sinni inn í námsskrá, það situr þar jafnan fast, hvað sem tautar og raular. Þá vil ég víkja lítillega að meginatriðum þeirrar gagn- rýni, sem ýmsir uppeldisfrömuðir hafa haldið fram gegn þeim skólaháttum, sem að framan var lýst. Sú gagnrýni er orðin svo almennt viðurkennd meðal fjölmargra hugs- andi manna um þessi mál, að erfitt mun að kenna hana við einn höfund fremur öðrum. Þegar ég var kennari í upp- eldisfræðum við kennaraskólann, rakti ég fyrir nemend- um mínum helztu atriði þessara kenninga, nákvæmlega á sama hátt og ég kenndi þeim um pietisma, filantropisma og fjölmargar stefnur aðrar. Ég leit á þetta sem merkilegar kenningar að vísu, sem gaman var að vita um, en ég hafði

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.