Menntamál - 01.12.1950, Qupperneq 10

Menntamál - 01.12.1950, Qupperneq 10
208 MENNTAMÁL mjög takmarkaða trú á þeim, eins og ég hef haft yfirleitt á öllum kenningum. En eftir því sem ég hef reynt fleira, án þess þó að ég ætli að fara að gorta af mikilli reynslu í uppeldismálum, þá hefur mér æ betur skilizt, að þarna sé um harla mikilvæg sannindi að ræða, og ef þeim sann- indum væri meiri gaumur gefinn, virðist mér tvímæla- laust, að stefnt væri að meiri farsæld í sambúð manna. Þið skuluð ekki búast við neinu stórkostlegu. Þetta er ein- faldur og óbrotinn sannleikur. Kjarni hans og kvöð er þetta: að virða vilja, eðli og áhugamál hins vaxandi manns. Þið hafið öll heyrt þetta. Og ykkur kemur ef til vill í hug, að ungt fólk verði aldrei að mönnum á eintómu dekri. Eng- inn verði óbarinn biskup. Harðræði sé því ekki síður nauð- synlegt. Ég er ekki heldur að mæla með dekri, heldur virð- ingu og skilningi. En hvort stælist viljinn og eflist at- hafnasemin meir á því að fást sí og æ við verkefni, sem manni er skipað að vinna eða við verkefni, sem maður velur sér sjálfur? Og af hvoru sprettur meiri þroski, hvort er vænlegra til farsæls lífs? Þetta eru spurningar, sem okkur er skylt að gera okkur grein fyrir, þegar við ber- um ábyrgð á uppvexti ungra manna. í skólastarfi okkar högum við okkur, eins og við höfum allan vísdóm í höndum okkar. Við tökum svo til alla orku og tíma nem- endanna í þjónustu verkefna, sem við veljum þeim sjálf, og ætlum yfirleitt öllum hið sama. Þó kastar fyrst tólfun- um, þegar nemendurnir hafa engin innri skilyrði til að leysa þau. Hins vegar látum við það lönd og leið, hvort nemandinn hefur hug á öðru, þótt við eigum að vita það fullvel, þó að ekki væri nema af okkur sjálfum, að hugur, sem er fast bundinn við tiltekin umhugs- unarefni, er ekki greiður inngöngu fyrir önnur. — Og væri það svo óttalegt, þó að við værum ekki alltaf að þveita nemendum úr einu í annað. Þyrfti allt skólastarf að fara í handaskolum af þeim sökum, að við leyfð- um þeim stundum að velja sér viðfangsefni, ráða vinnu-

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.