Menntamál - 01.12.1950, Síða 12

Menntamál - 01.12.1950, Síða 12
210 MENNTAMÁL heyrt kennara segja frá því, að þá fyrst hafi þeir lært fræðigrein, er þeir fóru að kenna hana. Unglingurinn er þannig settur í þjóðfélaginu, að hann þarf fjölmargt að læra til þess að geta orðið maður með mönnum. Og náms- árangurinn verður vafalaust beztur með því, að hann sjái skynsamlegan tilgang með því að leggja sig fram. í þessu skyni höfum við beitt prófum og einkunnum. En sá regin- galli er hér á gjöf Njarðar, að þetta eru tilbúin markmið, jafnvel stundum hégómamál, en ekki raunsönn lífsins markmið, og áhrifamætti þeirra oft lokið um leið og skóla- nám er úti, menn finna, að strit þeirra hefur verið eftirsókn eftir vindi. Ég hef hér að framan stundum kalsað til fræðináms, svo að menn gætu ef til vill ímyndað sér, að ég væri að fjand- skapast við hinar göfugustu menningargreinar. Forði mér allir heilagir frá slíkum getsökum. Auðvitað eiga allir, sem hafa til þess getu og þörf, að fá að iðka fræði sín, en hitt tel ég varhugavert að þröngva öllum til sams konar fræðináms á kostnað annars, sem þeir hafa hug á að stunda og geta stundað sjálfum sér og öðrum til gagns og gleði. Og þó að ég hafi nefnt dæmi úr hinu bóklega námi, getur verklegt nám, leikfimi og hvað annað verið reyrt í jafn- einskorðuð kerfi og þau engu betri. Ég hef gerzt all-langorður, en hef þó ekki sagt nema brot af því, sem ég þykist hafa þurft að segja máli mínu til skýringar, og uggi því, að ýmislegt af því, sem ég hef sagt og einkum þó, að ég hef orðið að láta svo margt ósagt, geti valdið misskilningi. Ég vil því að lokum draga saman hið helzta, sem ég ætlaði mér að taka fram. Hið algengasta skólaform okkar, ekki sízt á gagnfræða- stiginu, á í verulegum atriðum rætur að rekja til aðstæðna, sem eru ekki lengur fyrir hendi, og hugmynda, sem hafa lif- að sitt fegursta. Þetta skólaform er því ekki að minni hyggju vaxið þeim vanda, sem okkur er á höndum um upp-

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.