Menntamál - 01.12.1950, Síða 19

Menntamál - 01.12.1950, Síða 19
MENNTAMÁL 217 Manndráp eða hvað? Varla hafa kennarar komið svo saman hin síðari ár, að ekki hafi húsnæðismál Kennaraskólans borið þar á góma, jafnt hvort fundum hefur borið saman austur á landi, vestur á Snæfellsnesi, norður á Akureyri eða suður í Reykjavík. Og ein samþykkt hefur kveðið við á öllum þess- um fundum: Áskorun til ríkisstjórnarinnar að láta reisa nýtt hús handa Kennaraskóla íslands. Nú er ríkisstjórnum það vorkunnarmál, að þær verði ekki uppnæmar fyrir sérhverri áskorun, sem á þeim bylur, jafnvel þótt hún komi frá svo hógværri stétt sem kennur- um. En jafnóviturlegt sem það er að gína við hverri flugu svo háskasamlegt getur það verið að skella skollaeyrun- um við öllum ábendingum góðra manna um nauðsynlegar framkvæmdir. Það húsnæði, sem Kennaraskólinn á við að búa, eru 3 stofur á miðhæð og 4. stofan á efstu hæð. Var hún upphaf- lega ætluð söngnum. í kjallara eru tvær stofur við hlið- ina á ófullkomnum náðahúsum. Auk ódaunsins, sem frá þeim leggur, rennur oft frá þeim flóðið fram á ganginn fyrir framan stofurnar. Hygg ég, að flestir muni sammála um það nú á dögum, að slíkur aðbúnaður sé vart mönnum bjóðandi. — Stofurnar á efri hæðunum eru mjög sæmilegar kennslustofur, og eru þær notaðar til handa 4 bekkjum skólans til kennslu í bóklegum greinum, í annarri stofunni í kjallara er geymt bókasafnið, og enn fremur er stúdent- unum kennt þar, en hin stofan er höfð til kennsluæfinga. Aðrar vistarverur eru ekki í skólahúsinu að frátalinni íbúð skólastjóra, nema ef nefna skyldi kompu á stærð við sæmilega myndarlegan fataskáp, sem ætluð er kennurum þessarar virðulegu stofnunar. — Þá hefur Kennaraskólinn eina stofu í Grænuborg á leigu, en auk þess fær hann inni

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.