Menntamál - 01.12.1950, Page 21
MENNTAMÁL
219
DÁNARMINNING:
Séra Hermann Hjartarson.
Séra Hermann Hjartarson, skólastjóri að Laugum,
lézt í Landspítalanum 12. september síðastliðinn.
Séra Hermann fæddist að
Flautafelli í Þistilfirði 22. marz
1887, sonur Hjartar Þorkels-
sonar síðar bónda og hrepp-
stjóra að Ytra-Álandi og konu
hans, Ingunnar Jónsdóttur frá
Kollavík. Hann lauk stúdents-
prófi 1912 og guðfræðiprófi
1915, gerðist fyrst aðstoðar-
prestur séra Jóns Halldórssonar
á Sauðanesi, veitt Mývatnsþing
1916, Laufás 1924 og Mývatns-
þing aftur árið eftir. 1944 gerð-
ist hann skólastjóri Laugaskól-
ans og gegndi því starfi til
dauðadags. — í sálmabókarnefnd átti hann sæti frá 1940.
Séra Hermann var kvæntur Kristínu Sigurðardóttur,
systur Kristjáns kennara á Brúsastöðum, eignuðust þau
6 börn.
Um séra Hermann farast Sigurgeir Sigurðssyni biskup
m. a. orð á þessa leið í Kirkjublaðinu 9. okt. s. 1.:
„Séra Hermann var um ýmsa hluti ólíkur öðrum mönn-
um. Hann var í raun og veru óvenjulegur maður.