Menntamál - 01.12.1950, Síða 24
222
MENNTAMÁL
Kennari réðst hann að Barnaskóla Reykjavíkur haustið
1923, varð skólastjóri Skildinganesskólans 1936 og síðar
Melaskólans.
Arngrímur er gæddur óvenjulegri orku og lífsfjöri. Það
er ekki hans lundarlag að híma við veginn og horfa á það,
sem þar fer fram. Hann vill eiga íhlutun um að stjórna um-
ferðinni. Og hans íhlutun er með þeim hætti, að gætt sé
heilla og hags hins óbreytta vegfaranda. Þessi atorkusemi
hans og velvild í annarra manna garð hefur orðið til þess,
að honum hefur verið falinn margháttaðri trúnaður af
hálfu samborgara sinna en flestum mönnum öðrum. Yrði
löng saga að segja frá þátttöku hans í félagsmálum, en
nefna má nokkur dæmi. Hann hefur átt sæti í barnavernd-
arráði frá 1932 og verið form. þess frá 1936, bæjarfulltrúi
1934—1938, verið í stjórn Alþýðuflokksfélags Reykjavík
ur frá 1938 og form. þess hin síðustu ár, átt sæti í mið-
stjórn Alþýðuflokksins um árabil, verið varaformaður
Bandalags starfmanna ríkis og bæja um nokkurt skeið.
Kennurum verður þó fyrst að minnast forystu hans um
málefni kennarasamtakanna. Hann hefur átt sæti í stjórn
S. 1. B. frá 1927, var form. 1934—’36, og var aftur kjör-
inn í það sæti á s. 1. sumri.
íslenzkir kennarar skulda þessum forvígismanni sínum
miklar þakkir, og þeir munu taka fullum hálsi undir þessi
orð sr. Sigurðar Einarssonar um hann: „Góður vinur, góð-
ur maður, góður drengur.“
1928 kvæntist Arngrímur Henny Othelíu f. Helgesen,
dóttur Helmers Helgesen eftirlitsm. hjá rafveitu Björgynj-
ar, mikilli myndarkonu. Eiga þau tvær mannvænlegar dæt-
ur, Unni og Áslaugu.
Á. H.