Menntamál - 01.12.1961, Side 55
MENNTAMÁL
241
innan skólanna, og dans er mikið iðkaður, enda kenndur
víða í skólum.
Þá vinna nemendur eitthvað lítils háttar með náminu,
eða um 11 % af 14 ára unglingum. Er þar einkum um að
ræða sendlastörf og útburð dagblaða.
Samkvæmt framan sögðu má ætla, að reykvískir ung-
lingar hafi yfirleitt nógu að sinna yfir skólatímann og
oft ærinn vinnudag. Má fremur óttast, að svefninn og
hvíldin séu í minna lagi, meðal annars af því, að almenn-
ingi virðist ekki ljóst, að þeir, sem vinna andleg störf, er
liggja af öllum þunga á taugakerfinu, þurfa ekki síður
hvíld en hinir, sem vinna hina svokölluðu erfiðisvinnu.
Næg hvíld og hæfilegur svefn mundi vafalaust draga úr
því eirðarleysi, sem virðist þjá nokkurn hóp ungmenna,
og hugur þeirra þá fremur beinast til hollra tómstunda-
starfa.
Ég vík þá máli mínu að þeim þætti í tómstundastörfum
námsfólks, sem er sérkennandi fyrir ísland, en það er
sumarvinnan.
Svo sem fyrr er að vikið, er sumarleyfi 10—12 ára barna
og allra unglinga í Reykjavík fullir fjórir mánuðir eða
júní, júlí, ágúst og september. Hefur löngum þótt sjálf-
sagt, að skólafólk ynni þennan tíma, eins og við yrði
komið, og er svo enn. Stálpaðir piltar, sextán ára og eldri
vinna margir að mestu leyti eða öllu fyrir sér, ef þeir
fá góða sumarvinnu, og fjöldi unglinga vinnur ýmiss kon-
ar létt störf bæði til sjávar og sveita. Fer kaupgreiðsla
þá eftir atvikum, til dæmis fer margt kaupstaðarbarna
til sumardvalar í sveit ár hvert, og vinna sum fyrir sér
og vel það, en önnur ekki, þau sem ung eru.
Tæp 75% þeirra reykvískra unglinga, sem luku skyldu-
námi í vor, höfðu einhvern tíma dvalizt í sveit. Við könn-
un þá, sem áður er getið, kom í ljós, að 96% unglinganna
stundaði vinnu og fékk goldið kaup. Þeir fáu, sem ekki
unnu, voru annaðhvort á ferðalagi erlendis eða veikir.
16