Menntamál - 01.12.1961, Page 102
288
MENNTAMÁL
sóknarinnar. Engin leið var fyrir hið fámenna starfslið að
útskýra og sýna kennslutækin eins vel og þurft hefði að
gera, en áhugi og skilningur f jölda fólks vaknaði, og mörg-
um varð ljóst, að ungmenni okkar hafa alls ekki sömu að-
stöðu til náms eins og jafnaldrar þeirra í nágrannalönd-
unum.
Mikið var um það rætt af lærðum sem leikum, hvaða
möguleika við hefðum á því að búa skóla okkar slíkum
tækjum og skapa kennurum aðstöðu til að nota þau. —
Lausn þeirrar gátu var víst ekki fundin á sýningunni, en
nú hafa íslenzkir kennarar séð, hvernig búið er að starfs-
bræðum þeirra í efnuðu löndunum.
Ég vil að lokum fyrir hönd íslenzkra kennara þakka öll-
um þeim, sem stuðluðu að því, að sýning þessi komst hing-
að til lands, og alveg sérstaklega þakka Þjóðverjunum
fyrir komuna, fyrir áhuga þeirra, erfiði og ljúfmennsku.
Slíkir gestir eru ætíð velkomnir.
íslenzk skólayfirvöld fóru vel af stað með þessari sýn-
ingu, og vona ég, að framhald megi verða jafn glæsilegt og
byrjunin. Vera má, að bætt starfsskilyrði veki nokkurn
áhuga á kennslustarfinu. Það er fleira en léleg laun, sem
dregur úr starfsgetu kennara hér, enda þótt störf, sem
unnin eru sem aukavinna, séu sjaldan vel unnin.
Reykjavík 21. okt.
Guðmundur Þorláksson.
P.S. Nokkuð af munum þeim, sem ekki seldust á sýning-
unni, og álitið var að kennarar hér hefðu áhuga á að fá,
var skilið eftir hér, svo sem smásjár, eðlisfræðiáhöld,
spritpreparöt, líkön, kort o. fl. Margt af þessu er þegar
selt, en nolckuð er eftir, og geta menn fengið upplýsingar
um það hjá undirrituðum.
Guðmundur Þorláksson
Eikjuvogi 25, Reykjavík. Sími: 84101.