Menntamál - 01.12.1966, Blaðsíða 31
MENNTAMÁL
237
til skapandi ímyndunarafls nemenda, en jafnframt veita
fastar skorður nauðsynlegt aðhald og aga í hugsun. Slík
markvís samning efnisgreinar er og væntanlega mikilvægur
undirbúningur eiginlegrar ritgerðarsmíðar. Ég nefni hér fá-
ein dæmi um æfingar af þessu tæi:
A. Semjið frásagnir, er séu ein efnisgrein hver, þar sem
eftirfarandi málsgreinar séu upphöf. Lengd hverrar efnis-
greinar sé urn 100 orð.
1. Ég reif bréfið upp í flýti.
2. Það var sama hvernig við reyndum, bíllinn neitaði að
fara í gang.
Upphöf þessi vekja öll áhuga. Nemendum ætti því
ekki að veitast erfitt að prjóna við hæfilegt framhald,
er stefndi að ákveðinni aðalhugmynd.
B. Semjið frásagnir, er séu ein efnisgrein hver, þar sem
eftirfarandi málsgreinar séu niðurlög. Lengd efnisgreinar sé
um 100 orð.
1. „Nú máttu opna augun,“ sögðu þau.
2. Konan hafði þá haldið mig vera þjóf!
3. Ég horfði á eftir seðlinum, þar sem hann flaut niður
ána.
Niðurlög þessi fela öll í sér hámark, sem undanfarandi
frásögn verður að nálgast stig af stigi.
C. Semjið frásagnir, er séu ein efnisgrein hver, þar sem
eftirfarandi málsgreinatvenndir séu fyrstu og síðustu máls-
greinar. Lengd efnisgreinar sé rúmlega 100 orð.
1. a. „Mér fellur ekki heldur þessi hattur,“ sagði konan.
b. Borðið var þakið höttum.
2. a. „Nú er stundin komin,“ heyrðist rödd segja.
b. Einhver hafði gleymt að slökkva á viðtækinu.
3. a. „Við tökurn á móti þér á flugvellinum,“ sagði pabbi
um leið og hann kvaddi mig í símanum.