Menntamál - 01.12.1966, Page 86
292
MENNTAMÁL
Hann var kvæntur Sigríði Hallgrímsdóttur, hreppstjóra,
Níelssonar. Börn þeirra hjóna eru Hallgrímur, Ingveldur, Guð-
mundur Áki og Sigríður Steinunn.
Lúðvíg var skólastjóri Handíðaskólans í 21 ár eða þar til
hann lét a£ því starfi sökum vanheilsu árið 1961.
Þann 25. ágúst 1966 andaðist Lúðvíg Guðmundsson 69
ára að aldri. Hin mikla virðing og samúð, er honum var
sýnd á hinzta jarðneska vegi, gefur til kynna að hér var
merkismaður til grafar borinn.
Hver var Lúðvíg Guðmundsson? Það er ekki auðvelt,
næstum ógerlegt að lýsa ævistarfi og verki þessa manns í
stuttu máli. Hvorugt verður túlkað með einni formúlu. Á
að fjalla um Lúðvíg sem ungan, vígfiman og bardagafúsan
stúdent eða um menningarfrömuð þann, er hann varð síðar
meir? Á að segja frá hlutdeild hans í bardögum um sjálf-
stæði landsins eða lýsa skólamanni eða hvatamanni íslenzkr-
ar listar. Á öllum þessum sviðum fann Lúðvíg sér verkefni.
Þó að Lúðvíg væri með afbrigðum mælskur og vel rit-
fær, hefur hann skilið of lítið eftir af ritgerðum, því hann
var fyrst og fremst athafnamaður. Hvarvetna blöstu við
verkefni, skapandi öfl og hæfileikar æskunnar, sem honum
fannst þurfa að leysa úr læðingi og beina á rétta braut,
íslandi til heilla. Ef við reynum að skilja til fulls persónu-
leika Lúðvígs, verðum við að gera það með hliðsjón af
þessu. Ævistarf Lúðvígs og hugarheimur hans voru óað-
skiljanlega tengd hinum mikla umbrotatíma íslands síð-
ustu 30—40 árin. Vettvangur Lúðvígs var einmitt í víglínu
hins mikla uppgjörs milli hins gamla og hins nýja, þ. e.
átaka andstæðra afla og skoðana, því að það sem gilti í gær
dugar ekki í dag. í gær voru það reynsla og brjóstvit, kjark-
ur og framsækni. í dag: vísindaleg rannsókn, kerfisbundinn
undirbúningur framkvæmda og nákvæmar tölur. í gær:
ímyndunaraflið og bráðabirgðasnilld. í dag: áætlun, út-
reikningar og hagræði. í gær: brautryðjendastarf, í dag: við-