Menntamál - 01.06.1970, Blaðsíða 7

Menntamál - 01.06.1970, Blaðsíða 7
nemendum eftir um árabil. i öðru lagi skal veita kenn- aranemum sérhæfingu, fyllri menntun á afmörkuðum sviðum uppeldis- (pædagogisk speciale) og náms- greina (liniefag), svo að þeir verði hæfir til að kenna sérstökum flokkum nemenda eða sérstakar námsgrein- ar í efstu bekkjum skyldunámsins og í gagnfræðaskól- um. Nánar tiltekið skiptist námsefnið á eftirtalin þrjú svið: 1) Kjarni. Til hans teljast: Uppeldisfræði, sálarfræði, kennslufræði, æfinga- kennsla, danska, kristinfræði, félagsfræði og þrjár af eftirfarandi greinum: mótun, söngur/tónlist, íþróttir, handavinna. 2) Kjörsvið. Skylt er að nema tvær kjörgreinar (af allt að nítján, sem kjörsviðið telur), en heimilt er að taka þrjár. Er hér bæði um bóklegar og verk- legar greinar að ræða. Ekki er ætlazt til, að sami skólinn geti veitt kennslu í öllum kjörgreinum. 3) Uppeldislegt sérsvið. Eftir vali fá kennaraefnin sérþjálfun i einu af eftirtöldum efnum: a) kennslu í yngri bekkjum skyldunámsstigs, b) kennslu í eldri bekkjum þess, svo og æsku- lýðs- og tómstundafræðslu, c) kennslu afbrigðilegra barna. Við þetta bætast svo afmörkuð námskeið í raddþjálf- un og framsetningu, námsvinnubrögðum, fjölskyldufræði, heilsufræði, umferðarfræðslu, leiðbeiningum um náms- og starfsval o. fl. Ofangreint námsefni skiptist á 7—8 kennslumisseri (semester). Sameiginlegu námsefni skal í meginatriðum lokið á fyrstu 4 semestrum, en uppeldisgreinar og kjör- greinar dreifast á 3.—7. semester.t) Til verklegrar þjálfunar (æfingakennslu) eru ætlaðar 12 heilar vikur, að viðbættum 4 ársvikustundum, en það mun svara til um það bil 7 vikna. Nemur því æfinga- kennslan alls um það bil 19 vikum. Gert er ráð fyrir 43 kennsluvikum á ári hverju. Framhaldsnám eftir kennarapróf geta kennarar stund- að i Danmarks Lærerhöjskole. Kennaramenntun í Svíþjóð Af greiningu skyldunámsins, 9 ára enhetsskolan I þrjú stig, leiðir, að fyrirkomulag kennaramenntunar I Svíþjóð er allmiklu flóknara en hjá Dönum. Núgildandi lög voru sett árið 1968, til þess að svara þeim nýju kröfum, sem stofnun enhetsskolans hafði f för með sér. Skv. þeim er gert ráð fyrir, að folkskoleseminarier, er annazt hafa menntun barnakennara, leggi smám saman app laupana og við hlutverki þeirra taki kennaraháskól- ar (lararhögskolar) og háskólar (universiteter). Inntökuskilyrði. Almennt er krafizt stúdentsprófs til inntöku í, kennaraskóla. Þó er sú undantekning á, að þeim sem hyggjast kenna við yngri deildir barnastigs- ins (lágstadiet, 7—9 ára börn) nægir að hafa lokið prófi úr félags- og sálfræðideild fackskola eftir tveggja ára nám. Geta þeir þvi hafið kennaranám einu ári fyrr en stúdentar — eða við 18 ára aldur. Námstimi. Fyrir kennara við yngri deild barnastigsins er námstiminn 21/2 ár, við eldri deild (mellanstadiet, 10 —12 ára börn) 3 ár og við unglingadeild (högstadiet, 13—15 ára) 4 ár. Námsefni og skipulag. Gagnstætt því sem tíðkast með Dönum er hvorttveggja nokkuð breytilegt eftir stigum skyldunámsins. Þó er þess krafizt af öllum kennurum — auk staðgóðrar almennrar menntunar og fagþekkingar — að þeir hljóti þjálfun í að rækta með hverjum nem- anda sjálfstæði, ábyrgð og samstarfsvilja og í að beita einstaklingsbundnum leiðbeiningum i sundurleitum bekkjum. Fyrir þvi er lögð rik áherzla á sálfræði-, upp- eldis- og kennslufræðilega menntun þeirra. Að öðru leyti greinist kennaranámið eftir stigum sem hér segir: a) Lágstadiet. Námsefnið skiptist milli kjarna og kjörsviðs. í kjarna eru þessar greinar: sænska, enska, stærðfræði, trúfræði (religionskunskap), átthagafræði, mótun (bild- och formarbete), tónlist og leikfimi. Þess- ar greinar eru stundaðar á fyrri hluta námstímans.1) Á síðari hlutanum er hverju kennaraefni skylt að velja tvær kjörgreinar, bóklega og verklega. í þessum kjör- greinum fá kennaranemarnir svo trausta fagþekkingu, að þeim er heimilt að kenna hlutaðeigandi greinar á mellanstadiet. Fagnámið tekur um það bil 4/10 námstímans, upp- eldisgreinar um 2/10, en afgangurinn er notaður til verklegrar þjálfunar. Meira er lagt upp úr æfinga- kennslu á þessu stigi en hinum síðari; til hennar er varið 171/2 viku samfellt, að viðbættum 6 vikum í á- heyrn, eða samtals 231/2 viku. Lætur nærri, að það svari til heils kennsluárs á fslandi. b) Mellanstadiet. Flér greinist námsefnið einnig í kjarna og kjörsvið. Teljast 13 greinar til kjarna, því að átthagafræði í lágstadiet greinist hér í mismunandi les- greinar. Á kjörsviði eru þrír námsgreinaflokkar, og íelur hinn þriðji verklegar greinar, íónlist og leikfimi. Hverj- um kennaranema er skylt að velja eina grein úr hverjum flokki, en kjörið er bundið við samstæðar greinar, í.d. efnafræði og líffræði, félagsfræði og landafræði. Nám í kjörgreinum fyrsta og annars flokks veitir kennslurétt- indi á högstadiet. Tii verklegrar þjálfunar eru ætlaðar 10 heilar vikur, að viðbættri áheyrn, eða oamtals um 700 kennslustund- ir af 2485 stundum alls. Kennarar á þessu stigi eiga að geta kennt allar 1) Sjá dr. Broddi Jóhannesson: Kennaraskólinn og kennara- 1) Það sem hér segir I einstökum atriðum um námsskrá kennara- menntunin, tafla bls. 289 I Menntamálum, XLII, 3. háskólanna í Svlþjóð er sótt til Kennarahéskólans I Uppsölum. MENNTAMÁL 89

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.