Menntamál - 01.06.1970, Síða 10
Stefna S. I. B.
í menntun
kennara
Á 21. fulltrúaþingi Sambands ís-
lenzkra barnakennara var eftirfarandi
ályktun um kennaramenntunina sam-
þykkt með samhljóða atkvæðum:
I.
21. fulltrúaþing S.Í.B. haldið í Melaskólan-
um dagana 5.—7. júní 1970 telur brýna nauð-
syn á því, að menntun kennara sé tekin til
gagngerðrar endurskoðunar. Þingið fagnar
því, að nefnd hefur verið skipuð til að vinna
að endurskoðun laga um Kennaraskóla ís-
lands, en minnir jafnframt á, að samhliða því
starfi er nauðsynlegt að endurskoða lög ann-
arra skólastofnana, sem mennta kennara til
starfa í skólum landsins, svo að æskileg
verkaskipting og samvinna verði tekin upp og
eðlilegt samræmi skapist á þessu sviði.
Þingið leggur áherzlu á, að það grund-
vallarsjónarmið verði viðurkennt, að allt kenn-
aranám skuli vera sérnám á háskólastigi.
Þingið lítur svo á, að lengd námstímans
þurfi að vera þrjú ár að minnsta kosti. Það
telur rétt, að sameiginlegur námskjarni verði
fyrir öll kennaraefni, en síðan velji nemendur
sér kjörsvið og valgreinar.
Þingið leggur á það höfuðáherzlu, að
starfsþjálfun kennaraefna sé stóraukin frá því,
sem nú er. Jafnframt telur þingið brýnt, að
kennurum, sem annast æfingakennslu kenn-
aranema, sé gefinn kostur á framhaldsnámi
og þeim sköpuð viðunandi starfsskilyrði.
II.
Þingið krefst þess, að undinn verði bráður
bugur að skipulagningu víðtækrar endur-
menntunar starfandi kennara og skorar á
menntamálaráðuneytið að beita sér fyrir því,
að árlega verði varið ríflegri fjárhæð í þessu
skyni. Ennfremur, að starfandi kennurum séu
opnaðar fleiri leiðir hér innanlands til fram-
haldsmenntunar og sérhæfingar á ýmsum
sviðum skóla- og uppeldismála.
MENNTAMÁL
92