Menntamál - 01.06.1970, Page 22

Menntamál - 01.06.1970, Page 22
Annars vegar mun ég því reyna að segja eitt- ltvað um þróun þessara mála fram til 1960 eða þar um bil, Itins vegar um málfræði, sem efst ltefir verið á baugi síðustu 10 árin. Það vill nefnilega svo til, að nokkur tímamót verða í sögu málvísinda í kringum 1960, um svipað leyti og breyting verður á málfræðikennslunni hér í Há- skólanum. En llest af því, sem þá þótti nýjabragð að hér á landi, /ar alls ekki nýtt í raun og veru. Áhrifa þeirra viðhorfa, sem tímamótum ollu í málvísindum um 1960, tók ekki að gæta í háskóla- kennslu hér fyrr en eftir miðjan áratuginn. Af þessu leiðir, að „nýja málfræðin", sem sum- ir nefna svo, er sennilega bæði gamalt og nýtt, sem blandast saman. En ef eitthvað má heita ný málfræði nú, er það hin svonefnda generatífa transformasjónsmálfræði, sem kennd er við Noam Chomsky og segja má, að hann hafi hleypt af stað með riti sínu, Syntactic Structures, 1957. Sjállur leggur Chomsky áherzlu á, að sín mál- fræði sé allt önnur en jjau málvísindi, s'em mest voru iðkuð — a. m. k. í Bandaríkjunum —, þegar Syntactic Structures kom út, og hann kallar „tax- onomic linguistics" til aðgreiningar frá sinni generatílu málfræði. Taxónómísk og generatíf málfræði er mótuð af því viðhorfi í málvísindum, sem venjulega er kallað strúktúralismi eða formgerðarstefna á betri íslenzku. Áhrifa þeirrar stefnu fer ekki að gæta hér á landi að neinu ráði fyrr en í kringum 1960, þ. e. um svipað leyti og Chomsky fer að láta að sér kveða og gerir upp reikninga við eldri formgerðarsinna. Ur því að málum er svo háttað, að taxónómísk málvísindi eru sumum a. m. k. álíka nýstárleg hér og generatífa málfræðin, kemst ég ekki hjá því að fara fyrst nokkrum orðum um strúktúralism- ann almennt. Strúktúralisminn er síður en svo nýr af nálinni og hugtakið engan veginn skýrt afmarkað. Um aldur hans má deila, en venjulega er upphaf hans rakið til svissneska málfræðingsins Ferdinand de Saussure (1857—1913), sem öðrum fremur er tal- inn sá tímamótamaður, er grundvöllinn lagði að málvísindum 20. aldar. Hann var kennari, fyrst í París, sfðar (frá 1891) við háskólann í MENNTAMÁL 104 Genf. Þar flutti hann fyrirlestra, sem hrifu svo nemendur hans, að jreir tóku sér fyrir hendur að gefa þá út að Saussure látnum. Tíndu tveir jjeirra þá saman Jjað, sem jjeir og aðrir liöfðu skrifað eftir honum í tímum, og jjað, sem til var með eigin hendi Saussures. Þetta rit — jjannig til orð- ið —, Cours de linguistique générale, sem kom út 1916, er talið hafa haft víðtækari áhrif en nokkurt annað málfræðirit á jæssari öld. Rétt er að geta jjess um leið, að nær 100 árum áður hafði Wilhelm von Humboldt (1767—1835) sett fram ýmsar liugmyndir í svipuðum anda, en óvíst er, hvort eða að hve miklu leyti Saussure lief- ir Jjekkt Jjær. Hitt er víst, að hin umfangsmiklu rit Humboldts voru miklu minna lesin og óað- gengilegri en lyrirlestrar Saussures, og auk jiess voru samtímamenn hans áhugasamari um mál- söguleg efni og samanburð tungumála heldur en heimspekilegar hugleiðingar um eðli mannlegs máls. Hér verður auðvitað ekki íarið út í að rekja hugmyndir Saussures til lilítar. Þó verður ekki komizt hjá Jjví að nefna fáein atriði, sem tíma- mótum ollu og setja mark sitt á málvísindi aldar- innar. Sjálfur var Jjó Saussure einmitt saman- burðarmálfræðingur og frægur fyrir ritgerð, sem hann skrifaði kornungur um indóevrópska sér- hljóðakerfið, Jjar sem hann setti fram J>á skýr- ingu, sem síðar hlaut nafnið „laryngal“-kenn- ingin. En Jjað er önnur saga. Þær hugmyndir Saussures, sem hér er ástæða til að vekja athygli á, eru aðallega tvennar. í fyrsta lagi varð hann fyrstur til að gera skýr- an og afdráttarlausan greinarmun á samtíma- legri (synchronique) og sögulegri (diachronique) könnun máls. Fram til þess tíma hafði sögulega sjónarmiðið verið ríkjandi, en smám saman fór athyglin að beinast meir og meir að aðferðum til Jjess að gefa sem gleggsta lýsingu á máli á ein- hverjum ákveðnum tíma, t.d. á líðandi stund, án Jiess að hafa hliðsjón af ferli J/ess eða sögulegri Jjróun. 1 öðru lagi er mikilsverður sá greinarmunur, sem hann gerði á la langue og la parole. Saussure leit á málið sem kerfi, órofa heild allra jteirra fjölmörgu reglna, sem málnotendur verða að

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.