Vorið - 01.12.1940, Side 6

Vorið - 01.12.1940, Side 6
74 VOEIÐ kné beygja sig á himni og jörðu og sérhver tunga viðurkenna að Jesús Kristur sé drottinn, Guði föður til dýrðar. Jólin eru hátíð ljósanna og gleðinnar. En á þessum tímum, þegar meiri hluti heimsins logar í styrjaldarbáli, minnumst við þess, að þau eru annað og meira. Ljós- ið eitt færir okkur ekki alltaf allt sem við þráum. Það getur verið kalt, þó að bjart sé. Gleði okkar mannanna getur verið af misjöfn- um rótum runnin. Hún getur ver- ið jarðnesk og jafnvel syndsam- leg. Það, sem veitir einum gleði, getur verið hryggðarefni annars. Það er ekki víst við séum í hinum rétta og sanna jólahug, þó bjart sé í kringum okkur eða hávær gleði. Það getur verið dimmt í sálum okkar og hryggð í hjörtum okkar fyrir því. Jólin eru ekki há- tíð hinnar ytri dýrðar, heldur þess ljóss og þeirrar gleði, sem þau skapa hið innra með mönnunum, í hjörtum þeirra og lífi. Þau eru hátíð friðarins. Okkur líður oft misjafnlega vel, stund- um jafnvel illa. Við erum ósátt við allt. Við erum ósátt við okkur sjálf, af því við finnum, að við er- um ekki eins og samvizkan segir okkur að við eigum að vera. Við erum ósátt við aðra menn, af því að annað hvort höfum við gert á hlut þeirra, eða finnst að þeir hafi gert á hlut okkar. Við erum ósátt við lífið, af því að okkur finnsf að það ekki gefa okkur það, sem við þráum og leitum að. Og þá er- um við jafnvel ósátt við sjálfan Guð. En jólin eru hátíð friðarins og sáttanna. Ekkert getur fært okkur annan eins frið, eins og barnið, sem fæddist í Betlehems- jötunni, ekkert sætt okkur eins við sjálfa okkur, aðra menn, lífið og Guð sjálfan, eins og þetta litla barn, sem englar fylgdu til jarðar og Guð lét boða frið sinn og vel- þóknun meðal manna. Hvernig má þetta verða? Nú eru nálega 2000 ár síðan þessi at- burður gerðist, og búið að halda jól í kristnum löndum í meira en 1660 ár. Samt er enginn friður enn, margir búa í myrkrinu og gleðin er ekki hlutskipti nema fárra. Heimurinn logar í styrjöld, kristnar menningarþjóðir kapp- kosta að ausa sem mestu böli og þjáningu hver yfir aðra. Víða verður dimmt á þessum jólum og í stað gleðinnar verður víða úthellt mörgum tárum. Ef til vill verða milliónir manna að hýma í loft- varnarbyrgjum sjálfa jólanóttina, og tugir millióna skjálfa í ótta og angist vegna ástvinanna, sem þeir eiga á vígvöllunum. Heilar þjóðir berjast við innri ótta og skelf- ingu og horfa með kvíða hins friðlausa fram til hvers komandi dags. Eru þetta jólin? Hátíð ljóssins, gleðinnar og friðarins? Friðar í mannssálinni, friðar milli manna,

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.