Vorið - 01.12.1940, Side 22

Vorið - 01.12.1940, Side 22
90 V O R I Ð sig og sagði: Fegursta drottning veraldarinnar, yndislegu hirð- meyjar! Hvers vegna grátum við, hinir hraustu hermenn? Við grát- um vegna þess að þið grátið. Ykk- ar sorg er okkar sorg. Takið gleði ykkar aftur, svo að við megum gleðjast. Þið eruð of yndislegar og fagrar til þess að vera sorgbitnar á svip. En hve hann er laglegur, sögðu hirðmeyjarnar. Þetta var falleg ræða, sagði drottningin. Já, prýðileg ræða, sögðu hirð- meyjarnar. Eigum við að gleðja hann fyrir? sagði drottningin. Já, já, sögðu hirðmeyjarnar. Finnst ykkur ekki sorgin bíta laust núna? spurði drottningin. Jú, bara pínulítið, sögðu hirð- meyjarnar. Eigum við þá ekki að hætta að gráta? sagði drottningin. Jú, jú, sögðu hirðmeyjarnar. Þá skulum við bi’osa, sagði drottningin. Já, já, sögðu hirðmeyjarnar. Einn, tveir, þrír, sagði drottn- ingin, og svo brostu þær allar og þá brosti kóngurinn og allir her- mennirnir. Haldið burt, sagði kóngurinn við herinn. Svo gaf hann drottn- ingu sinni augnabrúnalit, nýjustu tízku, og hún minntist aldrei framar á nýja kórónu. Lifðu þau svo í sátt til æfiloka. Aq. Jólaklukkurnar. (Marteinn situr við borðið. Eirík- ur kemur inn). Eiríkur: „Gott kvöld. Mér datt allt í einu í hug að líta inn til þín. Hvernig sæki ég að?‘ Marteinn: „Þökk fyrir, ágæt- lega. Fáðu þér sæti. Konan og börnin eru öll á jólasamkomunni í skólanum“. E.: „Ég hef sömu sögu að segja. — En hvers vegna ertu svona daufur í kvöld? Hvað er að?“ M.: „Ég er víst bara dálítið þreyttur eftir erfiðið. En nú fæ ég hvíld um jólin og þá gefst tóm- stund til að fá sér ofurlítið neðan í því“. E.: „Áttu við að mynnast við þá hálsmjóu?“ M.: „Ha, ha, en hvað þú ert skáldlegur. Alveg eins og lærðu mennirnir". E.: „Ekki kæri ég mig um að vera skáldlegur. En ég heyrði regluboðann á samkomunni í skólanum fyrir viku síðan segja

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.