Vorið - 01.12.1940, Page 28

Vorið - 01.12.1940, Page 28
96 VORIÐ ekki einn einasta dag lengur hjá henni í þessum dimma skógi. Og það varð að vera mennsk stúlka, sem gat búið til góðan mannamat, því hann var orðinn leiður á þessari eilífu bjarndýra- mjólk, og þá var hann líka búinn að fá nóg af þessum fötum úr bjarndýrahárinu, og stúlkan hans þyrfti bæði að kunna að vefa og sauma. Það vildi svo vel til, að fyrsta stúlkan, sem tröllkerlingin hitti var foreldralaus einstæðingur, og hún tók því undir eins vel að fara með kerlingunni út í skóginn og giftast Pétri. Þegar stúlka þessi hafði kynnst Pétri lítið eitt og vanist skógarlíf- inu, var haldið brúðkaup, og síð- an lifðu þau þrjú í sátt og sam- lyndi þarna inni í dimma skógin- um. Næsta ár fæddist þarna ofurlít- ill drengur, og þá fór gamla tröll- kerlingin að kalla sig ömmu, og henni þótti svo vænt um litla drenginn, að hún sat við rúm hans bæði dag og nótt. Árin liðu. Þessi litli piltur varð fullorðinn maður, ag einn góðan veðurdag heimtaði hann af tröll- skessunni að hún útvegaði sér konuefni, svo að hann gæti gift sig; annars sagðist hann ekki verða einum degi lengur í þessum leiðinlega skógi. Þannig hélt þessu áfram, og ég veit ekki hve margar ferðir tröll- V O R I Ð tímarit fyrir börn og unglinga. Koma út 4 hefti á ári^ minnst 24 síður hvert hefti. Árgangurinn kostar 2 krónur og greiðist fyrir 1. maí. Útgefendur og ritstjórar: Hannes J. Magnússon, Páls Briems- götu 20, Akureyri, og Eiríkur Sigurðsson, Hrafnagilsstr. 12, Akureyri. Prentverk Odds Björnssonar. Ráðningar á dœgradvöl í 3. hefti. !. Austri. — Suðri. — 2. 12 klukkustundir. 3. Þau voru aðeins fjögur. kerlingin varð að fara niður í sveitina til að sækja konuefni handa öllum drengjunum, sem fæddust og uxu upp þarna úti í skóginum, en dag nokkurn þegar kerlingin sat og vaggaði yngsta stráknum, drengnum, sem átti að kalla hana langa-langa-langömmu, heyrði hún ógurlegar drunur uppi í fjallinu og rödd, sem kallaði svo hátt, að það var eins og þruma færi í gegnum loftið: „Guri!‘ „Guri-i-i-i-i-i!“ „Komdu heim undir eins!“ „Og ef þú kemur ekki sam- stundis, þá sæki ég þig, ég er bú- inn að bíða nógu lengi eftir mið- dagsmatnum!“ (Lauslega þýtt úr norsku). H, M.

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.