Vorið - 01.06.1944, Qupperneq 3
VORIÐ
VALDIMAR V. SNÆVARR:
SKÓLALOK.
Nú lengir daginn. Himinn hlær
í heiðu ljósi íjær og nær,
og blessað landið brosir hlýtt
og býst aí kappi’ í vorskrúð nýtt.
Heyr fuglaskarans feginsljóð.
Heyr fossanið og lækjaóð. —
Já, vorið leggur óm við óm
í unaðsþrunginn gleðihljóm.
Þó hljóðnar senn í salnum hér,
því sumarleyfið byrja fer,
og þá kemst allt á ferð og flug,
sem frelsi ann af ráðnum hug.
Vor gamli skóli, þökk sé þér!
Að þinni fræðslu búum vér,
og góðminninga geymum fjöld
til glaðnings fram á hinnsta kvöld.
Vér skiljumst nú með létta lund
og leitum senn á vorsins fund.
Vér kveðjumst öll með kærleiksyl
og kát vér göngum starfa til.
Vér þráum blóm og svásan söng
og sumarstörf um dægrin löng.
Vort heit um dugnað hljóma skal
svo hátíðlega’ í þessum sal.
Þú, guð, sem býr á himnum hátt
og hefur skapað stórt og smátt, —
ó, hversu heitt vér þökkum þér
að þíi oss blessar, hvar sem er.
Ó, góði faðir, gaét þú vor
og gef oss kraíta, vilja’ og þor
að þræða ætíð þroskans leið
til þjóðarheilla’ um æviskeið!