Vorið - 01.06.1953, Blaðsíða 4

Vorið - 01.06.1953, Blaðsíða 4
42 V O R I Ð ég man næstum ekki, hvernig hann er útlits. EIRÍKUR: Er hann í Ástralíu? FRÆNKA: Já, og hann á þar geysimiklar jarðeignir og i'jölda fjár. FINNUR: Æ, þangað hefði mig langað til að fara. EIRÍKUR: O, jrað munar svo sem ekki mikið um hvern sauðinn. FINNUR: Já, þar er ekkert fyrir þig, því að mér hefur skili/t, að liann hafi enga bolakálfa. FRÆNKA (hlær hjartanlega). EVA: Að hverju ertu að hlæja, frænka, finnst þér strákarnir svo skemmtilegir? FRÆNKA: Ég verð svei mér að hlæja. EIRÍKUR: Sástu kannske sjálfa þig í speglinum, frænka? FRÆNKA: Séð mig sjálfa í speglin- um, hvað áttu við? EIRÍKUR: Jú, fyrst þú verður að hlæja, þá hlýturðu að hafa séð eitthvað skrítið og skennntilegt. FRÆNKA: Æ, skelmirinn þinn, ég skal svei mér jafna um þig. LÍSA (þjótandi): Vitið þið nú hvað. Marteinn frændi kemur hingað. FRÆNKA: Hingað, núna? LÍSA: Já. EIRÍKUR: Hvar er hann þá núna? FINNUR: Er hann hérna fyrir ut- an? LÍSA: Nei, það veit ég ekki, mamma hefur fengið bréf; í því stendur, að liann ætli að koma. FRÆNKA: Já, hann hefur alltaf verið nokkuð sprettharður, en — MÓÐIRIN (kemur): Hugsið ykkur bara, Marteinn frændi er að koma, viljið þið bara heyra. (I>es bréfið): Blessuð og sæl, öll saman. Þið verðið líklega liissa á bréfinu því arna, en ég er að hugsa um að koma heim, og ég býst við að verða kominn til ykkar jrann 17- þessa mánaðar. Ég er búinn að selja jörðina mína og ætla nú að setjast að heima á gamla Fróni fyrir fullt og allt. Ég var fyrst að velta fyrir mér, hvert ég skyldi snúa mér, en Jrað eruð nú þið, sem eruð nánustu skyldmennin, svo að ég nrun þá koma til ykkar, sé ég á annað borð vclkominn. Og svo hef ég líka hugsað mér að skipta því, sem ég hef handa rriilh með þeim, sem ég mun dvelja lijá. Þið eigið líka svo skemmti- lega krakka, að ég held ég hiki ekkert við þetta, en áður en ég samt ákveð þetta til fulls — lang- ar mig fyrst til að kynna mér lítið eitt, hvernig allt er umhorfs hjá ykkur. Þið verðið bara að heita mer því, að gera ekki neitt mn- stang mín vegna, og vera ekki með neitt auka vafstur og þess háttar, en — jæja, jæja, ég skal senda ykkur nánari fréttir uffl það, hvenær ég muni koma. Ég kem með flugvél. Líði ykkur nú

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.