Bjarmi - 01.07.1921, Qupperneq 1
BJARMI
= KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ
XV. árg.
Reykjavík, 1.— I5. júlí 1921.
16.—17. tbl.
Drottinn er minn hirðir, mig nmn ekkerl brcsla. Sálm. 53.
Krislján koiutngur X. og Alexandrine droltning.
Þegar Friðrik konungur VIII. kom til íslands var ferðaáætlun hans
svo úr garði gerð, að hann gat aldrei verið við guðsþjónustu, og var sagt,
að hann hefði furðað sig á þeirri tilhögun. Þegar I. G. Christensen ráðherra
og samnefndarmenn hans danskir vildu fara hjer í kirkju, var dyravörður
stjórnarráðsins sendur með þeim, ráðherrar vorir og samnefndarmennirnir
voru á hinn bóginn fúsir til að fygja þeim i skemtiferðir. — En nú hefur
oss þó farið það fram, að vjer rr.undum eftir að bjóða konungi í kirkju,
enda var honum vafalaust ljúft að koma þangað, Ijet þess sjálfur getið að
hann ætlaði að vera við almenna guðsþjónustu áður en hann færi, auk
hátíðaguðsþjónustunnar daginn, sem hann kom.
Konungshjónin eru kirkjurækin. Þegar Krislján X. frjetti um dauða
föður sins, var það fyrsta sem hann gerði, áður en hann var krýndur, að
biðja prest sinn að halda aukaguðsþjónustu og taka þau hjóniii til altaris.
Kristniboð hvað vera honum áhugamál, og meðan hann var á leiðinni til
Færeyja sendi hann mjög vingjarnlegt skeyti til hálíðafundar Kristniboðs-
fjelagsins danska í Khöfn. — Þeir sem sáu konung gjöra krossmark fyrir
sjer, þegar búið var að blessa í dómkirkjunni, munu ímynda sjer, að honum
þyki ekki nein minkun að kannast við trú sína.