Bjarmi - 01.10.1921, Page 2
17G
BJARMI
meðan hann var lítt þektur í borg-
inni, fór klerkur í verkmannaföt og
slóst í lið atvinnuleysingja, er báðu
um vinnn. f*að eina, sem bonum
bauðsl, var að moka snjó fyrir dollar
á dag, og vann hann að því í 2 daga
með nokkrum atvinnuleysingjum.
Þegar slík vika var úti, flutti hann
erindi um hvernig kirkjan gæti best
orðið þeim að liði og þeir kirkjunni,
sem hann hafði kynst í það skifti.
Má nærri geta að þeir fyrirlestrar
voru svo vel sóltir, að búðarloftið
varð of lítið, enda bættist óðum við
þessa 57, sem, voru í söfnuðinum,
er hann kom til Topeka.
Unga fólkið fjölmenti einkum til
að hlusta á hann, og fór liann (1891)
að lesa því sögurnar, sem hann var
að semja, í staðinn fyrir að flytja
síðdegismessu. »Fólkið man betur
sögur og hugsar meira um þær en
ræður«, sagði hann, »en ein saga á
ári er nóg, sje hún góð«. — Haustið
og veturinn 1896—97 las hann þannig
söguna »In His.Steps« — »í fótspor
hans«, sem vakti afarmikla eftirtekt,
og gerði hann brátt heimsfrægan.
Sagan er til á íslensku, gefin út af
ritstj. Bjarma (verð kr. 4,50), svo
henni þarf ekki að lýsa. Hún hefir
verið þýdd á 15 eða 16 tungumál og
yfir 10 miljónir eintaka hafa selst.
Engin amerísk bók önnur en »Tómas
frændi« hefir náð slíkri útbreiðslu.
Eitt dæmi sýnir þá feikna eftirtekt,
sem bókin vakti. Einn af söguhetj-
unum, Norman ritstjóri, var í hópi
þeirra er snjerust, og reyndi hann að
gefa út blað sitt »eins og Kristur
mundi gera«. — Slíkt er fásinna sögðu
sumir. En þá bauð útgefandi stærsta
blaðsins í Topeka, »Topeka Daily
Capital«, dr. Sheldon að verða ein-
valdur ritstjóri blaðs síns vikutíma,
og sýna nú sjálfur hvernig honum
tækist að gefa út ákveðið kristilegt
dagblað. Samdist svo með þeim að
útgefandi tæki að sjer alla fjárhags-
hættuna, en ágóðanum, ef nokkur
yrði, skyldi varið til líknarverka.
En blaðið flaug út er Sheldon tók
við því, áður hafði upplag þess verið
12 þús. á dag, en áður en vikan var
úti, seldust af því 300 þús. daglega
og auk þess kom út sjerstök útgáfa
af blaðinu bæði í New-York og Chi-
cagó og seldust 100 þúsund í hvorri
borg. Af ágóðanum var 100 þúsund
dolíars varið til að bæta úr hungurs-
neyð, er þá var í Indlandi, og auk
þess gáfu bændur í Kansas skipsfarm
af kojrnvörum, en annað kristilegt
blað, »Christian Herald«, leigði skip
og sendi kornið til Indlands.
Dr. Sheldon hefir skrifað fjölmarg-
ar aðrar sögur (yfir 30 orðið vin-
sælar, 4 verið snúið á dönsku) og
ótal blaðagreinar. Eru sögurnar allar
kristilegar og margar aðalpersónurnar
í baráttu við drykkjuskap og aðra
lesti.
Auðvitað hefir svo frægur rithöf-
undur og prestur fengið mörg »köll-
unarbrjef«. Tvisvar hefir hann (1908
og 1914) farið til Englands í bind-
indisþarfir, og í sömu erindum til
Nýja-Sjálands (1914); og meðan bann-
baráttan var svæsnust í Bandaríkjum,
var hann einn í »flugsveitinni«, sem
landsstjórinn i Indíana myndaði; voru
í þeirri sveit ýmsir frægustu ræðu-
menn Bandaríkjanna, jafnan reiðu-
búnir að fara þangað, sem andbann-
ingar gerðu árásir. Vegna þessara
ferðalaga varð dr. Sheldon að taka
sjer aðstoðarprest um bríð, en ekki
vildi hann annað »brauð« nje stöðu,
uns hann nú um síðustu áramót flutt-
ist til Ne\v-York og gerðist aðalrit-
stjóri að góðkunnu kristilegu viku-
blaði »Christian Herald«. Það er
orðið 43 ára gamalt, flytur stuttar
ræður, sögur, frjettir og myndir og