Bjarmi - 01.10.1921, Side 3
BJAftMí
111
gengst margoft fyrir stórfeldum sam-
skotum til líknarverka. Árgangurinn
kostar 3 dollara erlendis. Kaupendur
skifta hundruðum þúsunda.
Bibllan. — Postillur.
iii.
í síðasta blaði voru 2 aðkomnar
greinar með þessari fyrirsögn. Á. D.
fanst að gert hefði verið oflítið úr
húslestrunum gömlu í grein eftir B. J,
fyrv. ritstj. Bjarma, í blaðinu í vetur
sem leið, en Ól. Ól. kristniboði hældi
henni, og taldi biblíulestur miklu betri.
Báðir hafa nokkuð til síns roáls
að vorri byggju. í»að er vafalaust
blessun hverju heimili að heimilis-
guðsþjónustum. Sumt þroskað trúað
fólk kýs helst að lesa þá bibliukafla;
lesandinn biður bæn frá eigin brjósti
á undan og eftir; og sálmar eru
sungnir sje unt að koma því við,
sömuleiðis er eðlilegt að töluð sjeu
nokkur orð til útskýringar og heim-
færslu á eftir biblíulestrinum, þegar
margir eru við, eins og í skólum og
vinnustofum, sje nokkur viðstaddur
fær um það. — En rjett er það, að
engin von er til að sá maður sje til á
hverju heimili. Á hinn bóginn ætti
hver trúrækinn maður eða kona að
geta beðið bæn í áheyrn heimilisfólks
síns. Slík bæn gerir guðræknisstundina
miklu persónulegri og varnar því að
lesturinn verði dauður og áhrifalaus
vani.
Þyí er það fyrsta ráðlegging vor í
þessu efni til allra, sem vilja halda
uppi húslestrum, og hvaða lestrarbók,
sem lesin er: Flyttu bœn á undan og
eftir Ef þú ert því óvanur, þá sleppir
þú bæninni á undan fyrst í stað,
lesturinn hjálpar þjer til að nálgasl
Guð og tala við hann. En hvort sem
er, þá er holt að hugsa um það á
undan, hvað þjer ber að þakka,
hversu þú þarft að biðja, og fyrir
hverjum þú ættir að biðja. Annara
bænir, og þá sjerstaklega bænavers,
má einnig mæla fram, og einkar gott
er, ef allir viðstaddir vildu taka undir
þegar þú biður »Faðir vor« að end-
ingu. Reyndu að láta börnin byrja
þann sið snemma áður en vantrúar-
gaspur spillir trúartrausti þeirra og
lotningu. — En auðvitað verður þjer
að vera hugfast að bænin er viðtal
við Guð, og að Guð lítur á hugsanir
hjarta þíns, en hvorki á orðgnótt
þína nje fátæklegt orðalag.
Hitt er minni vandi, að velja hent-
uga kafla til lesturs. Alt nýjatesta-
mentið og mikið af gamlatestamentinu
er hentugt til þess, en oftast er ráð-
legast að byrja á guðspjöllunum,
Trúaður maður les oft í biblíunni
í einrúmi, ætti að verja til þess fáeinum
mínútum á hverjum morgni, og mjög
eðlilegt að hann lesi þann sama kafla
fyrir heimilisfólk sitt að kveldi, ef
það vill sinna því.
»En víða er skortur á þroskaðri
trú, og því þolir fólkið ekki megna
fæðu«, segja menn, og líklega ekki
ástæðulaust. Auk þess er það alkunn-
ugt að góðar lestrarbækur, bæði
stuttar hugvekjur og helgidagalestrar,
eru langmest keyptar og lesnar bæði
hátt og í hljóði þar sem er vakandi
trúarlíf. — Á ferðum mínum meðal
áhugasamra trúmanna á Norðurlönd-
um hefi jeg fremur sjaldan orðið þess
var að biblían væri ein notuð til
húslestra nema i fjölmenni eins og í
skólum og kristilegum gistihúsum.
En fólkið las hana samt miklu meira
en siður er hjerlendis, einkum í hljóði
á morgnana og við samtalsfundi, sem
mjög víða eru haldnir í hverri viku
árið um kring og allvel sóttir bæði