Bjarmi - 01.10.1921, Blaðsíða 15
B J A R‘ M I
183
Leiðbeining.
Pú, sem fetar fram hjá þeim sem grætur
og fyrirlítur tár hins vesla manns,
settu þig snöggvast frelsarans viö fætur
og faröu að læra kærleiksboðorð hans.
Nem þú orð af ljósinu lieimsins ijósa
er logavöndum lirekur myrkin svört:
Gjörðu það öðrum er þú vildir kjósa
að þjer sjálfum jafnan væri gjört.
Giiðlaiignr Guðnumdsson frá Stað.
Fátækt.
Pungt er að verða þiggja,
þurfa manna brauð,
opt gjörir hug minn hryggja,
hvað jeg er aum og snauð.
En innan skamms enda tekur
æfin mín þyrnum stráð,
þá hörmunga blær mig lirekur,
mjer hjálpar Drottins náð.
Pjer vrl jeg trúa og treysta,
trúfasti Drottinn minn.
Pað skal minn huga hreysta,
hjer þó jeg líði um sinn.
Stvrk mig við stríðsins enda,
storm hægðu dauðakífs,
svo fæ jeg senn að lenda
í sælu höfn eilífs lífs.
G. B.
Búndi á Snœfellsnesi skrifar 21. ágúst:
I 12. tölublaði Bjarma þ. ár. er grein
með fyrirsögninni »Alvarlegt íhugunar-
efni«; jeg hefi oft hugsað um að kristi-
legra fjelag þyrfti að myndast hjer á landi,
þó ekki væri nema til að styrkja að út-
gáfu þessa blaðs, það þyrfti að stækka
og verða víðlesið, nú þegar húslestrar
eru að mestu lagðir niður og kirkju-ferðir
strjálar, er fátt orðið sem vekur fólk til
umhugsunar um það allra nauðsynlegasta.
Jeg lief liugsaö mjer að kristilegt blað
sem kæmi oft út gæti komið að nokkru
leiti í stað húslestra, sem því miður verða
að líkindum ekki teknir upp aftur. Það
væri óskandi að Guð gæfi að hægt væri
að vekja hjer upp lifandi kristindóm nú
sem stendur sýnist trúin vera dauf eða
dauð.
Svo enda jeg þessar línur með ósk um
Guð styrki yður til að vinna að trúmál-
unum og útbreiða guðsríki og efla kær-
leikann.
Heima.
Sra Jón Brandssson, Kollafjarðarnesi
er skipaður prófastur í Strandasýslu. —
Sra. Jónmundur Halldórsson liefir fengið
veitingu fyrir Stað í Grunnavík samkvæmt
kosningu safnaðarins, hann var þar áður
settur. — Sra. Jón Jóhannesson Staðastað
sækir um Stað í Steingrímsfirði. — Sra.
Porvaldur Jakobsson i Sauðlauksdal er
orðinn kennari við Flensborgarskólann.
— Sveinn. Ogmundsson skólastjóra í
Flensborg, guðfræðiskandídat, tekur prest-
vígslu sunnud. 9. þ. m. og verður settur
prestur að Kálfholti.
Prestssetrið ogkirkjan á Mælifelli brann
til kaldra kola aðfaranótt þess 21. sept.
Fólk bjargaðist, en fátt annað. Presturinn,
Trvggvi Kvaran, misti meðal annars allar
bækur slnar, og telur ritstj. Bjarma vel
gert að skólabræður hans og góðkunn-
ingjar sendu honum góðar bækur, alveg
eins og gert var gagnvart sra. Jónmundi
Halldórssyni þegar brann hjá honum í
fyrra. Sra Fr. Friðriksson kvað veravæntan-
legur til íslands með Gullfoss, en sra.
Bjarni Jónsson með Botníu. Hafa þeir
báðir dvalið í Danmörku í sumar.
Iíristján konungur liefir 9. sept. sæmt
biskup Jón Helgason dr. theol. komman-
dörkrossi I. flokk og sra. Bjarna Jónsson
riddarakrossi Dannebrogsorðunnar.
Um siðferðismál var haldinn al-
mennur borgarafundur í Reykjavík 24. f.
m. fyrir forgöngu Bandalags kvenna og
að tilhlutun ýmsra fleiri kvenfjelaga. Kom
þangað hið mesta fjölmenni svo margir
urðu frá að hverfa. Frú Steinunn Bjarna-
son var fundarstjóri, ungfrú Inga Lára
Lárusdóttir, frú Guðrún Lárusdóttir, pró-
fessor Guðm. Hannesson og Maggi Magnús
læknir tóku til máls. Voru allir sammála að
alvarleg hætta væri á ferð hjer í bæ bæði
í siðferðislegu og heilbrigðislegu tilliti,