Bjarmi - 01.10.1921, Blaðsíða 16
m
B JAÍTM'I'
ef ekkert væri gert til að stemma stigu
fyrir lauslæti því, sem mikið hefir borið
á hjer í sumar. — Ýmsar stúlkur, ýmist
aðkomnar eða reykvískar og sumar peirra
kornungar, hafa sýnt alveg ótrúlegt kæru-
leysi og blygðunarleysí einkum gagnvart
liðsmönnum á danska herskipinu Fyllu;
hafa pær farið bæði um borð i herskipið
og með útlendingunum út úr bænum
jafnt á nótt sem degi. Ljettúðin hlær að
synd og svívirðingu í dag — en seinna
koma aðrir dagar pegar veslingarnir súpa
beiskar dreggjar hirðuleysis síns með
munaðarlaus börn, ólæknandi sjúkdóma
og brennimerki smánarinnar. Auk pess
eru heimili peirra í hættu, pví búast má
við að pessir aumingjar breiði út frá sjer
næm viðbjóðsleg veikindi.
»De Ulykkeligste« eftir Ólafíu Jó-
hannesdóttur er nýkomin út í annað sinn.
Fyrsta prentun peirrar bókar rann út og
vakti mikla eftirtekt um Norðurlönd;
hingað til lands komust fáein eintök og
fengu færri en vildu. Nú eru hingað kom-
in nokkur hundruð af seinni útgáfunni,
og er hún fjórum sögum lengri en hin
var. Má búast við að pau seljist öll í
haust, pví að bæði er bókin prýðiiega
skrifuö og segir frá átakanlegum dæm-
um ljettúðar og spillingar, og pótt pau
sjeu frá höfuðborg Noregs eiga pau pví
miður mikið erindi til pjóðar vorrar á
pessari ljettúðar öld. Bókin er á norsku,
kostar óbundin 4 kr. en í góðu bandi 6
kr. Aðalútsöluna hjer á landi annast höf-
undurinn.
Ljósberinn. Smárit barnanna, heitir
barnablað, sem Jón Helgason prentari,
ritstjóri Heimilisblaðsins, er nýfarinn að
gefa út, og hefir komið út i liverri viku
síðan 6. ágúst. Hvert blað er 8 blaðs. i
sama broti og bókin »í fótspor hans« og
er selt á 25 aura. Er ánægjulegt að um
700—800 hafa selst af hverju blaöi hjer í
bænum og nágrenninu, pví að blaöið
flytur ekkert annað en kristindóm, sögur,
hugleiðingar og vers, væri óskandi að
blaðið kæmist sem víðast og Iifði Iengi.
Kristniboðsfjelagið, sem stofnað
var í Reykjavík í vetur sem leið og telur
nálægt 30 meðlimi, hefir fengiö pessar
tekjur samkvæmt skýrslu gjaldkerans
N. Fjeldbergs, sápugjörðarmanns: Á fje-
lagsfundum annan hvoru mánudag: 280
kr., á almennum krístniboðsfundi 18. maí:
270 kr., útisamkomu i Kópavogi 24 júli:
232 kr., minningarsamkomu nm Jón Dalbú
8. ág: 260 kr., gjafir afhentar af ritstjóra
pessa blaðs: N. N. 30 kr., N. N. 35 kr.,
P. S. 5 kr., N. 5 kr., 3 kr. 5 kr. A. A.
Laugarn. 5 kr., úr Árnessýslu 20 kr. — og
N. N. 100 kr. Gjaldkerinn pakkar hjartanl.
pessar góðu undirtektir og biður prestana
að segja söfnuðunum frá eymd heiðninnar,
og veita viötöku pví sem fólk kynni að
vilja gefa til kristniboðs.
Ritstjóri Bjarma tekur á móti slíkum
gjöfum, ef menn óska, en par eð fjelögin
eru tvö, er æskilegt að vita hverju fje
laginu vjer eigum að afhenda gjafirnar
Eldra fjelagið heitir Trúboðsfjelag kvenna,
og heflr styrkt kristniboð á Indlandi, eru
i pví konur einar, forstöðukonan er frú
Anna Thoroddsen, gjaldkeri frú Ingileif
Sigurðsson og ritari frú Guðrún Lárus-
dóttir. 1 yngra fjelaginu er karlmenn einir,
og i stjórn pess Sigurbjörn Á. Gíslason,
N. Fjeldberg og Ingvar Árnason. Bæði
fjelögin ætla sjer að styðja kristniboð
Ólafs Óiafssonar í Kína í samvinnu við
norska fjelagið, sem sendir hann.
Til H allgrimskirkju 50 kr. áheit frá
Gunnari.
Erlendís.
Ólafur Ólafsson kristniboði fór 15. sept.
af stað frá Kyrrahafsströndinni til Kína.
Áritun hans er nú: The Norwegian Luth-
eran China Mission, Laohowkow, Hupeh,
China.
Enskur biskup var að tala á sam-
komu í skemtigarði, eins og títt er par í
landi. Greip pá vantrúarmaður fram í
fyrir honum og sagði: »IIaldið pjer að
livalurinn haíi gleypt hann Jónas?« »Jeg
skal spyrja hann um pað pegar jeg kem
í himnaríki«, svaraði biskup. »En ef hann
skyldi ekki vera par?« sagði hinn. »Pá
getið pjer stálfur spurt hann um pað«,
svaraði biskupinn.
Útgefandi Signrbjörn Á. Gíslnson,
Prentsmiðjan Gutenberg.