Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.01.1976, Side 8

Bjarmi - 01.01.1976, Side 8
Lilja S. Kristjánsdóttir TRU stofu alheimssambands kristilegu stúdentahreyfingarinnar á bibliu- legum grundvelli (IFES) fró ein- um þessara starfsmanna, sennilega siSasta bréfiS, sem berst þaSan um sinn. — Eftirfarandi línur eru tekn- ar úr þessu bréfi: „Ég hef ákveSiS aS vera kyrr, og ég hvet engan af kristnu stúd- entunum til þess aS fara af landi brott. ÞaS þarf aS prófa trú þeirra meB þrengingum. Og ég held, aS GuS muni ekki bregSast þeim, ef þeir trúa á hann i raun og veru. Ég er tortrygginn á trú, sem tek- ur lifinu létt. Enn fremur þurfa þeir aS vera hér til þess aS vitna fyrir þeim, sem þarfnast Krists svo mjög. LagSar verSa hömlur á starf mitt, en þeir fá fleiri tœkifœri en ég til vitnisburSar og til þess aS stySja hver annan. Ef allir fara frá Víetnam, hver verSur þá liér til þess aB vitna fyrir hinum?” BréfiS endaSi á þessa leiö: „Þetta er sennilega siSasta sam- band mitt viS IFES (Intemational Fellowship of Evangelical Stu- dents). BiSjiS fyrir mér og einnig fyrir stúdentunum og fyrir kirkj- unni, aS viS fáum kjark, styrk og vizku til þess aS horfast í augu viS eldraunina, sem bíSur okkar. Drott- inn okkar er upprisinn. ViS eigum eftir aS þjást, deyja og rísa upp meS honum raunverulega. SkiliS hlýjum kveSjum frá okkur til allra félaga í alþjóSasambandinu. Þökk fyrir." f annarri frétt segir, aS kom- múnistar í SuSur-Víetnam séu byrj- aöir aB taka til hendinni gagn- vart trúuSum mönnum, eins og viS mátti búast. Nokkrir prestar úr hópi mótmœlenda, svo og einn kristniboði, hafa þegar veriS drepn- ir; einnig tveir kaþólskir biskupar. Kommúnistar hafa útrýmt 450 kennurum í kristilegum skólum í fylkinu Darlac. Ein til tvœr millj- ónir kristinna manna í SuSur-Víet- nam eru á „svörtum lista" kom- múnista og bíða örlaga sinna í bœn. Forstjóri kristniboSssamtak- anna Christian Missionary AUiance hefur sagt á blaSamannafundi: „Flóttamenn hafa upplýst okkur um, aS prestar og forstöSumenn hafi veriS skotnir opinberlega, þeim til dœmis og ótta, sem reyna aS efna til andstöSu viS guSleysis- stefnu innrásarliSsins. FramtíS kristinnar kirkju í Vietnam er óviss. Ég hvet menn til aS biSja fyrir innlendum prestum, sem hafa ákveSiS aS vera kyrrir á sínum staS til þess aS veita Iöndum sín- um andlegan styrk og leiSsögn á þessum órólegu tímum". Þær hétu Kristine og Elí, kon- urnar tvær í f jallabyggðinni Egge- dal í Noregi, sem ég kynntist fyrir meira en 20 árum. Ég gisti oft heimili þeirra beggja, hlaut frá- bærar móttökur og átti vináttu þeirra ekki aðeins, meðan ég dvaldi í Noregi, heldur líka þó að Atlants- álar skildu okkur að. Ég mat þær mikils og gat margt af þeim lært. Þess vegna festi ég línur þessar á blað til að fleiri fái að kynnast þeim lítillega gegnum fátækleg orð mín. Þó að ég sæi ekki Kristine og Elí fyrr en veturinn 1954, þá veit ég margt um ævi þeirra fyrir þann tíma. Kristine hafði gifzt ung. Maðurinn hennar missti heilsuna fljótlega. Hún bjó á litlu, erfiðu fjallabýli með heilsulausan mann og stóran barnahóp, sem hún kom vel til manns. Rétt fyrir lát eigin- manns síns seldi hún litla fjalla- býlið og fluttist niður í dalinn. Þar keypti hún snoturt einbýlishús og hjálpaði nágrönnum sínum eftir þörfum þeirra. Þegar einhver veikt- ist, var alltaf leitað á náðir Krist- ine. Hún hjúkraði og hlynnti að hinum sjúku, og þegar dauðinn barði að dyrum á einhverju heim- ilinu, var kallað á hana til að ganga frá síðasta hvílurúminu. Auk þessa hafði hún kirkjuvörzluna á hendi, það var hennar fasta starf. Sízt af öllu má ég gleyma kristniboðs- félaginu, sem Kristine helgaði krafta sína og veitti forstöðu með miklum sóma. Hún var vel greind, skarpskyggn og skáldmælt. Þegar ég heimsótti hana í fyrsta sinn, var hún nýlega gift seinní manni sínum, ekkjumanni, sem rekið hafði bú langt uppi í Vesturbyggð, efsta og vestasta hluta dalsins. Nokkru áður hafði hann látið búið í hendur sonar síns og tengdadótt- ur, svo að við giftinguna flutti hann inn í húsið til Kristine. Þar kynntist ég þeim og fékk síðan jafn hlýlegar móttökur hjá báðum. Nokkurn spöl ofan við heimili Kristine og Hedgars var stórbýli, þar sem Vidvei-hjónin, komin á efri ár, bjuggu ásamt tveim börn- um sínum. Öll hin börnin voru löngu horfin úr hreiðrinu. Elí var eina dóttirin í hópnum. Þegar hún var nokkuð innan við tvítugt missti móðir hennar sjónina, og auk þess þjáðist hún af sykursýki. Upp frá því annaðist dóttirin heimilið fyrir föður sinn og bróður, auk þess sem hún hugsaðí um sjúka og blinda móður sína af mikilli prýði. Gestagangurinn var mikill á þessu stórbýli. Móttöku gestanna annað- ist Elí og hlynnti auk þess að bróö- ur sínum, sem bjó ofar í dalnum og var enn ókvæntur. Á sumrin þyrptust svo bamabörn gömlu hjónanna í sveitina ásamt öðru skylduliði. Elí tók á móti öllum með bros á vör. Aldrei kvartaði hún yfir því að vera bundin við stórt heimili og sjúkling öll æsku- árin. Hún taldi það kristilega skyldu sína að leysa öll þessi störf vel af hendi. Auk þeirra annaðist hún sunnudagaskólann í sveitinni. Stundum var hún ein, en oft voru aðrir með henni. Svo var hún auð- vitað meðlimur í „Bláklukkunni", kristinboðsfélaginu, sem Kristine veitti forstöðu. Árin liðu. Ég fór aftur heim til Islands. Áður en ég kvaddi Noreg, barst mér falleg og mjög persónu- leg gjöf, sem mér þykir innilega vænt um, frá vinum mínum í Egge- dal. í hvert sinn, sem ég brá mér til Noregs, varð ég að heimsækja Kristine og Elí, en annars skipt- umst við á bréfum. Mér var það vel kunnugt, að þær höfðu aldrei farið út fyrir landa- mæri Noregs, utan það, að EIí hafði einu sinni dvalið dagstund á sænskri grund. Þær höfðu aldrei haft tíma til slíkra hluta. Allt líf þeirra beggja hafði verið fórn fyrir aðra, en sú fórn var færð með brosi á vör. Elí missti foreldra sína, föður- inn skyndilega og móðurina eftir margra mánaða sjúkdómsstríð, þar sem dóttirin lagði nótt við dag í kærleiksríkri umönnun. Síðasta veturinn hafði Kristíne líka veitt 8

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.