Bjarmi - 01.03.1982, Side 9
JAPAN:
Fjórar merkar
heimsóknir
Þcffar kristnir Japanir horfa um
öxl ogr líta yfir síðustu mánuði,
minnast þeir einkum f jögurra heim-
sókna, sem allar höfðu mikil áhrif,
hver á sína vísu.
Bandaríski predikarinn Billy
Graham er sífellt á faralds fæti,
þótt hann sé kominn vel yfir miðjan
aldur. Hann fór „krossferðir" til sex
japanskra borga og boðaði fagnaðar-
erindið — meðal fólks, þar sem að-
eins einn af hundraði er kristinn, ef
þeir eru þá svo margir. Tugir þús-
unda hlýddu á Graliamt og mörg
þúsund manns tóku ákvörðun um
að leita Jesú Krists eða fylgja hon-
um.
Billy Graham.
Jóhannes Páll páfi II. stóð við
nokkra daga í Japan, þegar hann
var á ferð sinni um Asíu. Bæði blöð
og sjónvarp sögðu rækilega frá
heimsókn hans. Það er ekki á hverj-
um degi, sem Japanir geta lesið
kristilegar ræður á forsíðum dag-
blaðanna. Alls staðar mátti sjá stór
veggspjöld með myndum af páfa.
Keisarinn veitti honum áheyrn og
fagnaði honum vel. Enn mun keis-
arinn vera eins konar tákn trúar og
þjóðrækni meðal Japana.
Ennþá meiri áhrif höfðu móðir
Teresa og Pólverjinn Lech Walesa
i Japan, bó að viðhöfnin væri minni,
begar tekið var á móti þeim. Fram-
koma þeirra vakti hlýhug í brjóst-
Um Japana, og þau báru fram skýr-
an vitnisburð um lífsviðhorf sín.
Móðir Teresa gerði grein fyrir
kærleiksboðskap sínum í klukku-
stundar dagskrá í sjónvarpi. Þar
kigði hún áhcrzlu á, að okkur bæri
að annast um þá, sem veikir væru
Jóhannes Páll páfi II.
í samfélaginu. Við eigum að vernda
hið ófædda mannslíf og veita böm-
um, sem fá að vaxa úr grasi, kær-
Ieika. Kærleikurinn byrjar í fjöl-
skyldunni, og sannan kærleika get-
ur enginn átt, fyrr en samband hans
við Guð er eins og vera ber, sagði
móðir Teresa mcðal annars.
Hún breytti öllum tímaáætlunum
sínum tU þess að geta heimsótt fá-
Móðir Teresa.
tækrahverfi í Tokýó og Ósaka, stór-
borgum í Japan, og eftir komuna
þangað sagði hún, að öUum bæri
skylda til að hjálpa þessu fólki.
Einnig voru sýndar margar sjón-
varpsdagskrár um óþreytandi starf
hennar í þágu utangarðsfólks og
aumingja í Kalkúttu á Indlandi.
Fjórði maðurinn, sem heimsótti
Japan ekki alls fyrir löngu og mark-
aði djúp spor, var Lech Walesa. 1
ritstjórnargrein í blaðinu Mainichi
Daily News, sem ritað er á ensku,
var Walesa líkt við „ofurstirni".
Hann hafði látið í ljós þá ósk, áður
en hann fór til Japan, að hann gæti
gert PóUand að öðru Japan. Einkum
langaði hann til að kynna sér,
hvernig því véki við, að Japanir
væm svo iðjusamir sem raun ber
vitni.
Lech Walesa.
Allar sjónvarpsstöðvar gerðu dag-
skrár um hann — og þar kvað við
annan tón: Walesa dró ekki dul á
vonbrigði sín, eftir að hann hafði
séð Japan með eigin augum. Hann
sagði meðal annars:
— Ég kom hingað tU að læra af
Japönum, en ég ber kvíðboga fyrir
framtíð Japans.
— Þegar PóUand og Japan eru
borin saman, nýta Pólverjar jörðina
aðeins að einum tiunda hluta í land-
búnaði, og iðnaðurinn er eins og
einn á móti hiuidraði, miðað við
Japan, en ég held, að Pólverjar lifi
manneskjulegra Ufi.
— Það er lagt of hart að bömum
t skóla í Japan.
— Börnin eiga sér næstum ekkert
athvarf, þar sem þau geta Ieikið sér.
— Vélar eiga að þjóna mönnun-
um. Menn eiga ekki að þjóna vélum.
— Kristindómurinn hjálpaði okk-
ur, þegar hörmungarnar vom mest-
ar, er við unnum að bví að efla
„Einingu" meðal verkamanna.