Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.07.1982, Blaðsíða 6

Bjarmi - 01.07.1982, Blaðsíða 6
ALLT BMGGIST Á NÁÐ GUÐS EINNI Viðtal við séra Ólaf Jóhannsson, nývígðan skólaprest Sú hugmynd vaknaði lijá forráðamönnum Bjarma, að fróðlegt ga>ti verið að hirta viðtal við nývígðan skólaprest, séra Olaf Jóhannsson, lesendum hlaðsins til glöggvunar á starfi hans og Kristilegu skólahreyfingarinnar (KSH) sem kallað hefur hann til starfa. Var undirrituðum falið að freista þess að ná tali af honum í því skyni. Séra Ólafur varð fúslega við þeirri málaleitan og heimsótti viðmœlanda sinn nýlega. Fer hér á eftir eitt og annað af því, sem þeim fór á milli. V s — Það er e. t. v. best að byrja á því að spyrja þig, hvemig það legg- ist í þig að hefja starf sem skóla- prestur. — Það leggst nú bara vel í mig, því að ég veit vel að hverju ég geng. Ég hef lengi tekið þátt í starfi að- ildarfélaga KSH, Kristilegra skóla- samtaka og Kristilegs stúdentafé- lags, og tel mig þekkja innviði þeirra vel. Ég er því alls ekki kvíð- inn, heldur fullur eftirvæntingar. — I hverju er starf skólaprests aðallega fólgið ? — Skólaprestur er framkvæmda- stjóri Kristilegu skólahreyfingar- innar, enda er starf hans kostað af félögum hennar. Hann ber vissa á- byrgð á starfinu innan hennar og á því að fylgjast með því sem gerist í KSS og KSF. í því felst m. a. um- sjón með uppfræðslu, leiðtogaþjálf- un og biblíuleshópum þegar þeir starfa, auk almennrar þátttöku í fundum og mótum. Þá á skólaprest- ur að styðja viðleitni félaga KSH til starfs í skólum, t. d. með því að heimsækja skóla og ganga í bekki eða fá orðið ,,á sal“, sé grundvöllur fyrir þvi. Þá fer hann ásamt aðstoð- arfólki út á land, þangað sem að- stæður eru fyrir kristilegt skóla- starf, t. d. kristileg unglingafélög eða hópar i framhaldsskólum, sem vilja fá slikar heimsóknir. — Það er í tísku að tala um tíma- skekkju. Er það ekki tímaskekkja að tala um trúmál við æsku, sem elst upp í neysluþjóðfélagi og hefur állt til alls og virðist ekki hafa. þörf fyrir Guð í lífi sínu? — Alls ekki. Þörfin er einmitt 6

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.