Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1995, Síða 3

Bjarmi - 01.12.1995, Síða 3
Staldrað við Jól í skugga áfalla Aðventan er runninn upp og jólin nálgast óðfluga. Þessi tími er á margan hátt sérstakur. Myrkrið er mikið og við fjölgum Ijósum hjá okkur bæði innan dyra og utan. Ljósin minna okkur á ljósið sanna sem kom í heiminn og upplýsir hvem mann. Orð Jesaja spámanns rættust þegar Jesús fæddist hér á jörð: „Sú þjóð, sem í myrkri gengur, sér mikið ljós. Yfir þá, sem búa í landi náttmyrkranna, skín ljós“ (9:2). Þessi orð eiga síðan við um alla þá sem taka á móti honum sem fæddist í Betlehem fyrir tvö þúsund árum. Þau eiga einnig sérstaklega vel við hér á landi. A þessum árstíma er landið okkar „land náttmyrkranna", sól er lágt á lofti og skammdegismyrkrið mikið. Þessi orð geta einnig átt við á sérstakan hátt að þessu sinni. Þjóðin hefur orðið fyrir miklum áföllum á þessu ári vegna náttúruhamfara og slysa. Þegar við stöndum andspænis áföllum lífsins er eins og myrkur leggist yfir. Við sjáum oft ekki fram úr myrkrinu og óleysanlegar spurningar hrannast upp í huga okkar. „Hvers vegna?“ spyrjum við og finnum ekkert svar. Það er erfitt að halda jól í skugga áfalla og sorgar því við bindum svo rnargar góðar minningar við þá sem við syrgjum og söknum um jólin. Við slíkar aðstæður getur okkur jafnvel virst myrkrið enn svartara en fyrr og spurningarnar um Guð og vilja hans leita enn frekar á hugann. Andspænis syrgjandi fólki er stundum freistandi að slá fram ódýrum lausnum á þeiin gátum sem við er að glíma. Vandinn er bara sá að þegar áföllum og þjáningu lífsins er að mæta eru ekki til neinar ódýrar lausnir. Hvað þá um Guð og vilja hans? Það merkilega er að Guð býður heldur ekki neinar ódýrar lausnir. En jólin flytja okkur boðskapinn um þá lausn sem Guð gaf, lausn sem kostaði rnikið en dugir líka ein. Hið sanna ljós kom inn í inyrkrið. Guð gerðist sjálfur maður. Sonur Guðs gekk inn í kjör manna í hrjáðum heimi og þjáðist með þeim og fyrir þá. Þegar við kveikjum lítið Ijós finnst okkur myrkrið stundum enn svartara vegna þess að andstæðurnar skerpast. Það kann að vera að jólin með öllu því sem þeim tilheyrir ýfi sorg og söknuð. En þrátt fyrir það skín Ijós í myrkrinu. Hann sem sem þekkir okkur og aðstæður okkar stendur við hlið okkar. Hann gekk í gegnum þetta allt sjálfur og vann sigur. Upprisa hans boðar okkur það. Þess vegna höldum við ekki jól til þess eins að kveikja ljós í skammdeginu eða til að minnast fæðingar lítils barns í Betlehem. Við höldum jól af því að Guð sendi son sinn í heiminn til að frelsa okkur undan synd og dauða. Jesús Kristur kom og hann lifir. Þess vegna kemur hann til okkar á jólum með boðskap sem hann einn getur flutt okkur, boðskap sem einn veitir huggun: „Eg er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér, mun ekki ganga í myrkri, heldur hafa Ijós lífsins" (Jóh. 8:12). Guð gefi okkur gleðileg jól í Jesú nafni. Ujarmi I Kristilegt tímarit Útgetendur: Kristilega skólahreytingin, Landssamband KFUM og KFUK og Samband islenskra kristniboðsfélaga. Ritstjóri: Gunnar J. Gunnarsson. Ritnefnd: Anna Magnúsdóttir, Benedikt Arnkelsson og Gunnar H. ingimundarson. Afgreiðsla: Aðalskrifstofan, Holtavegi 28, pósthólf 4060,124 Reykjavík, sími 588 8899, bréfsími 588 8840. Árgjald: Kr. 2.500,- innanlands, kr. 3.000,-til útlanda. Gjalddagi 1. mars. Verð í lausasöiu kr. 500,- Útlitshönnun og aðstoð við útgáfu: SALT hf - Tómas Torfason. Ljósmyndir: Magnús Fjalar Guðmundsson o.fl. Prentun: Borgarprent. Efni: Staldrað við: Jól í skugga áfalla ................... 3 Sr. Karl Sigurbiörnsson: Hvers vegna lét Guð slysið verða?..... 4 Kvikmyndir: Braveheart.............................10 F - síðan: Vitnisburður í góðgætinu ..............15 Kristniboð: Góðir nemendur gulls ígildi............16 Kristniboð: Barninu bjargað á síðustu stundu ......18 Hver var Ágústus keisari?..............20 Kjartan Jónsson: Samþykktur.............................22 Úttekt: Utgáfustarf í jólamánuði...............24 Gyða Karlsdóttir: Við áttum öll sömu hugsjón.............27 Sr. Gísii Jónasson: Erum við að missa af lestinni?.........30

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.