Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1995, Blaðsíða 10

Bjarmi - 01.12.1995, Blaðsíða 10
AÐALGREIN hervirki hins illa. Við sjáum Guð í myrkrinu, Guð í angistinni, Guð í dauðanum. Hvers vegna ákallar maðurinn Guð þegar ólagið ríður yfir? Og hvaða svara æskir hann? Hvaða svar viljum við fá við ráðgátu þjáning- arinnar? Jesús er svarið við ráðgátu þjáningarinnar. Við þurfum að hlusta í trú á svarið sem hann gefur, en umfram allt þiggja svarið sem er HANN, návist hans. Mín bæn til einskis er I Matt. talar Jesús trúna sem getur flutt fjöll: „Ef þér hefðuð trú eins og mustarðskorn þá gætuð þér sagt við fjall þetta: Lyft þér upp og steyp þér í hafið, og svo mundi fara.“ Þetta er eitt margra orða Jesú sem Hvers vegna grípur Guð ekki inn í og bjargar? Svarið er ekki fólgið í orðum einum vegna þess að samkvæmt kristnum skilningi er ekkert svar til við ráðgátum þjáningarinnar, nema krossinn. Þar birtist vanmegna Guð, Guð sem bíður ósigur, en sigrar þó í ósigri sínum. Þetta er þverstæða krossins, þverstæða sem enginn getur skilið nema reyna á sjálfum sér. Sem heimspekileg tilgáta er þetta fráleitt og stangast á við öll rök. Þó hefur það sýnt sig að þetta er svar sem svalar og sefar. Þess vegna er krossinn svona áleitið tákn. Ekki vegna þess að hann gefur skýring- ar og lausnir á römmum rúnum þjáningar og dauða, heldur af því að hann tjáir samstöðu í þjáningunni, samfylgd í gegnum þjáninguna. Heyrir Guð þá ekki bænirnar? Hlustar hann þá ekki á kveinstafi þeirra sem elska hann og treysta honum? Jú, hann heyrir. Hann finnur til með og hann vill hjálpa. Þar kemur að þú færð að sjá að þessi þögn, þessi fjarvist Guðs, er í raun og veru faðmur hans, föðurfaðmur hinnar Hann einn getur fært fjöll úr stað, honum er ekkert um megn. Að trúa er að treysta honum algjörlega og hvíla algjörlega í því trausti. Myndin, dæmiÖ, verÖur þó fráleitt þegarþaÖ er túlkaÖ sem svo aÖ í trú og bæn hafi maÖur náÖ tangarhaldi á almættinu og verÖi því ekkert um megn. hvetja til trúar, trúar sem er algjört og skilyrðislaust traust til Guðs. Dæmið sem Jesús tekur er fjarstæðu- kennt, en er sett upp sem lýsing á almætti Guðs. Hann einn getur fært fjöll úr stað, honum er ekkert um megn. Að trúa er að treysta honum algjörlega og hvíla algjörlega í því trausti. Myndin, dæmið, verður þó fráleitt þegar það er túlkað sem svo að í trú og bæn hafi maður náð tangarhaldi á almættinu og verði því ekkert um megn. Dæmisögur Jesú eru eins og skrýtlur, brandarar, sem varpa ljósi á hluti, leifturljósi, svo ný sýn opnast eitt andartak. Þær segja þó aldrei sannleikann allan. Allt verður að túlka út frá þeirri heild sem líf Jesú er, líf og líka dauði. Þar sjáum við ekki aðeins sigra óbifandi trúar, sigra og kraftaverk, heldur líka ósigur, bæn sem ekki var heyrð, Getsemane, (Lúk. 22.39 - 44) og örvinlan þess sem kvelst yfirgefinn í einsemd á Golgata (Mark. 15.33 - 34). Bæn og trú eru ekki for- múlur til að virkja máttarvöldin og ná fram mark- miðum sínum. Bæn og trú að kristnum skilningi er traust og trúnaðarsamfélag, eins og barns á móður- armi eða föður. eilífu náðar, móðurbrjóst kærleikans eilífa, þeirrar fyrirgefningar, kærleika, miskunnsemi, þess Guðs sem Jesús birti og boðaði. Þér fannst Guð hafa yfirgefið þig. Hann yfirgefur þig aldrei, en þú sást hann ekki af því að hann hélt þér í faðmi sínum og sleppti ekki, þegar þú barðist um eins og fársjúkt barn sem í óráði berst um í faðmi mömmu eða pabba. Foreldraástin heldur því fast. Kær- leikur Guðs sleppir þér aldrei. Meðan þú læsir ekki hjarta þínu fyrir honum. Þess vegna skaltu biðja. Og þótt ég öðlist eigi það sem ég bað um, þá gefur þó bænin það sem ómetanlegt er, þessa ósýnilegu návist kærleikans sem vill eiga allt og líða allt og njóta alls með mér. Trú er tengsl, samfélag eins og ást og tryggð, ekki tæki eða tækni til að virkja hulin öfl og máttarvöld. Þeir eru margir sem eftir fæðingarhríðir mikilla þjáninga og sorga gátu sagt með trú- 10

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.