Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.12.1995, Qupperneq 12

Bjarmi - 01.12.1995, Qupperneq 12
KVIKMYNDIR Braveheart KVIKMYND MEÐ TILVISUN TIL GUÐSPJALLANNA Því hefur verið haldið fram að vestræn menning og hugmyndasaga sé óskiljanleg nema í Ijósi kristinnar trúar og kenningar. Einnig er kunnugt að í bókmenntum og listum er sífellt verið að vísa til Biblíunnar og kristinnar kenningar þannig að ætli fólk að njóta til fulls verður það að þekkja það sem vísað er til. Þetta gerist einnig í kvik- myndum. Kvikmyndin Braveheart (Frelsishetjan) hefur verið sýnd í kvik- myndahúsum í Reykjavík frá því í haust. Þetta á við um hana. Hún öðlast ekki fulla dýpt í huga áhorfandans fyrr en það lýkst upp fyrir honum hvernig myndin vísar beint og óbeint til frásagnar guðspjall- anna af Jesú, lífi hans, þjáningu og dauða mönnunum til frelsunar. Braveheart greinir frá skosku frelsishetjunni Vilhjálmi Wallace. Sagan gerist kringum aldamótin 1300 þegar Vilhjálmur stjórnaði uppreisn Skota gegn Játvarði I. Englandskonungi, en hún markaði upphaf langrar frelsisbaráttu sem að lokum skilaði árangri. Fjöldi sagna er til um Vilhjálm og eiga margar þeirra rætur að rekja til sagnaljóðs frá því á 15. öld. Vinsælustu sögumar eru ekki studdar rituð- um heimildum, enda eru þær af skomum skammti, en þær sýna þau áhrif sem Vilhjálmur hefur haft á skoska þjóðarsál og enn syngja menn ljóðið um hann. Saga Vilhjálms Nokkrar heimildir eru þó til. Fram kemur að faðir hans hafi verið sir Malcolm Wallace, eigandi lítils lands í Renfrew. Árið 1296, árið áður en Vilhjálmur kemur fram á sjónarsviðið, hafði Játvarður I. Englandskonungur steypt konungi Skota af stóli, látið varpa honum í fangelsi og lýst sjálfan sig kon- ung yfir Skotlandi. Stöku uppreisnir höfðu átt sér stað þegar Vilhjálmur Wallace og um 30 manna hópur með honum brenndu virkið í Lanark og drápu þar ensk yfirvöld í maí árið 1297. í kjölfarið skipu-

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.