Bjarmi - 01.12.1995, Page 14
KVIKMYNDIR
Kvikmyndin og gubspjöllin
Kvikmyndin Braveheart er um rnargt heillandi þótt
ýmislegt í sögu Vilhjálms sé skáldað og fært í stíl-
inn. Stórbrotnar og vissulega blóðugar bardagasenur
í myndinni hafa vakið mikla athygli og munu alls
um 3000 leikarar hafa tekið þátt í því að festa or-
ustuna við Stirling á filmu. f>að sem vekur þó sérstaka
athygli er hvernig Kristsmynd guðspjallanna setur
sterkt mark á framsetninguna og áréttar það með
einstökum hætti hve frelsið er dýru verði keypt.
Vilhjálmur er líklega 10 - 12 ára drengur þegar
hann hverfur af sjónarsviðinu í myndinni en birtist
svo aftur fullvaxta maður. Hann verður fljótlega
frelsishetja eða „frelsari" Skota og sífellt fleiri úr
röðum alþýðumanna safnast um hann. Hann er því
orðin veruleg ógn við veldi Játvarðs I. suður í
London. Sögurnar um hann taka að breiðast út og
honum er líkt við Móse sem leiðir Israel úr
ánauðinni í Egyptalandi í gegnum Rauðahafið. í
London leggja menn aftur á móti á ráðin um hvernig
ráða megi Vilhjálm af dögum. Játvarður konungur
talar um að her Vilhjálms sé aðeins sauðir og það
þurfi einungis að slá hirðinn til að tvístra hjörð hans
lands því Játvarður I. deyr um svipað leyti og
Vilhjálmur er hálshöggvinn. Eftir dauða Vilhjálms
verður það síðan Robert Bruce (,,Pétur“) sem leiðir
frelsisbaráttu Skota til enda og her hans gengur til
baráttunnar fylltur baráttuanda og eldmóði Vil-
hjálms Wallace.
Niöurlag
Kvikmyndin Braveheart flytur ekki sem slík boð-
skapinn um Jesú Krist eins og hann er í guðspjöll-
unum. En hún fær öll dýpri merkingu þegar hún er
skoðuð í ljósi þess boðskapar vegna þess hve sterkt
hún vísar til hans. Þannig getur myndin einnig orðið
áhorfandanum tilefni til hugleiðingar um frelsið
undan ánauð syndarinnar og hve dýru verði það
frelsi var keypt þegar sonur Guðs lagði sjálfan sig í
sölurnar fyrir mennina. Myndin dregur auk þess
fram, sem fjandskap gegn frelsinu, illsku manna,
hroka þeirra og fyrirlitningu, undirferli, svik og
eiginhagsmunahyggju. Hún minnir jafnframt á að
frelsið er það dýrmætt og getur kostað svo harða
baráttu að menn verði að gjalda fyrir það nteð lífi
sínu. í því sambandi má minna á orð Jesú: „ Ætlið
(sbr. Matt. 26:31). Og Játvarði tekst að finna
„Júdasa“ sem unnt er að kaupa til að svíkja hann.
M.a.s. Robert Bruce („Pétur"), sem hrífst af eldmóði
Vilhjálms og vill líkjast honum, afneitar honum en
sér svo eftir öllu saman.
Frelsið kostar frelsishetjuna lífið. Vilhjálmur er
svikinn í hendur yfirvalda og háir sína „Getsemane-
baráttu“ í fangelsisklefanum. Loks er hann bundinn
á láréttan kross, pyntaður og hálshöggvinn eftir
síðasta hróp sitt: „Frelsi!“ Fáeinir fylgismenn hans
standa álengdar og fylgjast með. Barn hans lifir hins
vegar í móðurkviði væntanlegrar drottningar Eng-
ekki, að ég sé kominn að færa frið á jörð. Ég kom
ekki að færa frið, heldur sverð.... Hver sem tekur
ekki sinn kross og fylgir mér, er mín ekki verður. Sá
sem ætlar að finna líf sitt, týnir því, og sá sem týnir
lífi sínu mín vegna, finnur það“ (Matt. 10:34; 38-39).
GJG
14