Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.12.1995, Side 16

Bjarmi - 01.12.1995, Side 16
KRISTNIBOÐ Söfnuöum í Afríku fjölgar en víöa vantar góöa leiöbeinendur. Biblíuskólar gegna því mikilvægu hlutverki. Myndin er frá guösþjónustu í Eþíópíu. 30 næturgestir í kofa Margs er að gæta þegar ungir, kristnir söfnuðir eru að slíta barnsskónum og læra að standa á eigin fótum, marka stefnuna sjálfir og efla samfélagið að eigin vild. Þá getur ýmislegt rekið á fjörur sem gott er að kynnast en getur leitt menn afvega ef ekki er góð þekking og kjölfesta fyrir. Dæmi um þetta eru í bréfum postulanna í Nýja testamentinu. Nýlega þurfti Karl J. Gíslason, kristniboði og kenn- ari í Agere Selam í Sídamófylki í Eþíópíu, að fara hundrað km leið í grennd við stað sem heitir Bansa. Þar var haldið námskeið um Postulakirkjuna svo- nefndu, sem veldur mikilli truflun í lútherskum söfn- uðum í landinu, og um heilagan anda og gjafir hans, svo og um hjónabandið. „Þátttakendur voru á þriðja hundrað og höfðu sumir komið langt að, voru einn til tvo daga á leið- inni,“ skrifar Karl. „Safnaðarfólk á staðnum hjálpaði þeim um húsnæði og fæði. Við vorum 30 í hverjum kofa. Þröngt mega sáttir sitja - og sofa! Viðtökur fólksins voru mjög góðar og er greini- legt að hér í Sídamó sem og í Austur-Bale er þörf á mikilli fræðslu, einkum um gáfur andans og notkun þeirra og svo um Postulakirkjuna (vígorð hennar er „Jesús einn“). Margir þátttakendur voru úr þeirri kirkju og hvíta- sunnukirkjunni. Ég lagði því áherslu á að kennsla mín væri byggð á Biblíunni og játningarritum lúthersku kirkjunnar. Þegar við kvöddum fólkið vorum við boðin sérstaklega velkomin aftur. „Við þurfum meiri fræðslu,11 sögðu öldungamir." Kristniboðar störfuðu áratugum saman í Bansa- héraði en hafa ekki verið þar síðustu sex til átta árin. Kirkjan sjálf ber nú ábyrgð á öllu starfinu. Karl telur nokkuð á vanta að prédikarar og öldungar ræki skyldur sínar við söfnuðina eins og vera ber. Asta María Karlsdóttir var með föður sínum á ferðalaginu og undi sér vel í félagsskap barnanna á staðnum. Systkinunum, Astu Maríu og Gísla Davíð, vegnar vel. Ávöxtur eftir 45 ára sáningu Fyrir nokkrum vikum lagði Karl leið sína suður undir landamæri Kenýu, til Moyale, til að vera viðstaddur vígslu fyrsta kirkjuhúss lútherskra manna þar þar syðra. „Drottinn hefur gert mikla hluti þar undanfarin sex ár. Sæði, sem sáð hefur verið með blóði, svita, tárum og bænum, er loks farið að bera ávöxt. Fyrir sex árum voru safnaðarmenn þarna aðeins 30 - 40 en nú eru þeir 760 talsins. Reyndar eru aðeins örfáir þeirra af ættflokki Bórana. Hinir eru allir „bæjar- búar“, þ.e. Amharar og annarra kynflokka menn. Þó er ástæða til að fagna. Norska kristniboðssambandið hóf að starfa þarna árið 1950 og það er fyrst núna, 45 árum síðar, að orðið ber mikinn ávöxt. Vegir Guðs eru sannarlega órannsakanlegir.“ Biblíuskólinn í Agere Selam er þrískiptur. Þar er kvennaskóli (12 nemendur), eins árs biblíuskóli (25 nemendur) og prestaskóli (14 nemendur). Karl kennir í öllum þessum deildum. Kennslugreinar hans núna eru Minni fræði Lúthers, Lúkasarguðspjall og siðfræði. Samkvæmt gamalli venju senda söfnuðirnir þá menn í prestsnám í skólann sem lengst hafa starfað. Þetta er óheppilegt fyrirkomulag því að sumir þeirra hafa ekki setið á skólabekk árum saman og starfs- ferill annarra fer óðum að styttast. „Áhugi nemend- anna er mjög misjafn. Góðu nemendurnir eru 25 - 16

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.