Bjarmi - 01.12.1995, Side 19
UM VÍÐA VERÖLD
sjálfur inn í myrkur Satans og sigraði myrkrið í
upprisunni. Eins á unga móðirin huggun vísa hjá
honum sem kvaddi móður sína, þegar hann hékk á
krossinum, og fól hana lærisveini sínum. Já, Jesús
hefur líka falið okkur, lærisveinum hans, þessa ungu
móður í Voitó.“
Börnin og bænirnar
Þau Bjarni og Elísabet þakka kristniboðsvinum
fyrirbænir. „Við vitum að margir hafa beðið
sérstaklega fyrir Markúsi syni okkar (1 árs) sem
hefur verið slæmur í eyrunum. Vökvi myndast í
báðum eyrum hans og honum hættir til að fá eyma-
bólgu. Haldið áfram að minnast hans í bænum
ykkar. Við finnum áþreifanlega að við erum borin á
bænarörmum af trúföstum bræðrum og systrum.
Annars líður okkur vel og Markús er reyndar yfir-
leitt bráðhress og kátur á daginn en sefur misjafn-
lega á nóttunni. Ingunn (11 ára) og Elías (7 ára) una
sér vel í skólanum og Aron (5 ára) er í „forskóla"
þrisvar í viku frá kl. 9-12.
Börnin eru glöð í góða veðrinu en nú er þurrka-
tími og sól og blíða dag eftir dag. íþróttir eru stund-
aðar af kappi og svo þarf að sinna dýrunum sem eru
á skólalóðinni, t.d. dúfunum og kanínunum, skjald-
bökunum sem eru alls sjö og misjafnar að stærð, alit
frá lófastærð upp í það að pabbi getur ekki einu
sinni loftað þeim (þó að hann sé að sögn Arons
langsterkasti pabbi í heimi).
Sjáum hlutverk okkar. Biðjum og störfum fyrir
hann er fæddist inn í þennan heint sem bjargarlaust
barn, var hafnað og dó á krossinum en reis upp sem
konungur og frelsari til þess að engu mannsbarni
skyldi hafnað - því að leiðin er opin öllum sem vilja
trúa.
Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla í Jesú
nafni og þökkum innilega fyrir stuðning í orði og
verki á liðnu ári.“
ENGLAND:
Deilur vegna kvenpresta
Enn er tekist á í ensku kirkjunni vegna kvenpresta. hálfu öðru ári eftir
að fyrsta konan hlaut prestsvígslu í þeirri kirkjudeild. Ný athugun leiðir
í ljós að margir prestarnir, sem segja upp stöðum sínum vegna komu
kvennanna, hætta virkri þátttöku í kirkjunni en fara ekki í aðra kirkju,
segir í blaðinu Dagen.
Á fjórða hundrað prestar hafa sagt sig úr kirkjunni. Fimmtíu þeirra
hafa reyndar látið skrá sig í kaþólsku kirkjuna. En næsturn jafnmargir,
21,7 af hundraði, hafa hætt virkri þátttöku og annað hvort farið á
eftirlaun eða snúið sér að öðrum störfum.
Rómversk-kaþólska kirkjan er ekki sú eina sem hefur tekið á móti
nýliðum úr herbúðum ensku kirkjunnar heldur má þar einnig nefna
rétttrúnaðarkirkjuna og svo ýmsar fastheldnar, anglíkanskar
kirkjudeildir sem hafa rofið tengslin við móðurkirkjuna.
Fabio Sani í háskólanum í Exeter hefur kannað stöðuna í ensku
kirkjunni eftir að samþykkt var að konur gætu gegnt þar prestsþjónustu.
Sani segir að þeir sem séu mótfallnir kvenprestum telji að hugsunin um
tilvist kvenpresta sé kirkjunni svo tjarlæg að koma þeirra hafi breytt
kjarna hennar. Þeir sem santþykkja kvenpresta eru santa sinnis — á
hinn veginn: Kirkjan hefur nú nálgast fullkomnum, segja þeir.
Hvorugur aðilinn hefur sýnt merki þess að hann láti af skoðunum
sínum frá því fyrsta konan var vígð í ntars 1994. Má ætla að enn líði
langur tími áður en ró kemst á í kirkjunni. Svo virðist sent margir
andstæðingar kvenpresta séu kynir í kirkjunni vegna þess að þeir finni
að ekki er gengið frarn hjá þeim þrátt fyrir skoðanir þeirra, enda vonast
þeir til að geta unnið komandi kynslóðir á sitt band, segir Fabio Sani.
Þá ntega þeir einnig þiggja umsjón biskupa, sem styðja þá í þessu máli,
í stað eigin biskupa.
Margir prestarnir, sem gengu í kaþólsku kirkjuna, eru kvæntir og er
stutt síðan sá fyrsti þeirra bjó sig undir að gerast þar prestur. Til eru þeir
kaþólskir prestar sem telja að sér eigi að vera heimilt að ganga í
hjónaband og hafa þeir nú kvartað yfir að þeint sé mismunað. Sumir
þeirra hafa kvænst og hefur því verið vikið úr embætti. Þeir hafa
myndað samtök sem kallast Aðventa.
Kardínálinn Basil Hume réttlætir starf kvæntra presta úr anglikönsku
kirkjunni með því að þeir séu komnir til kaþólsku kirkjunnar á andlegu
ferðalagi úr kirkju sem leyfir að prestar gangi í hjónaband. Rómversk-
kaþólsku prestarnir vissu frá upphafi að þess væri krafist að þeir væru
einhleypir. segir kardínálinn. En Aðventumenn sætta sig ekki við þessi
rök.
19