Bjarmi - 01.12.1995, Síða 20
FRÆÐSLA
Hver var
/
Ahverjum jólum heyrum við nafn hans þegar jólaguðspjallið er
lesið: „En þaÖ bar til um þessar mundir, aÖ boÖ kom frá Ágústus
keisara, aÖ skrásetja skyldi alla heimsbygÖina“ (Lúk. 2:1). En
hver var hann þessi Ágústus?
Hann hét í rauninni Gaius Oktavíanus. Hann var
fæddur 23. september árið 63 f.Kr. inn í velmegandi
fjölskyldu sem bjó í Velitrare suðaustur af Róm.
Faðir hans hafði komist til metorða og átti m.a. sæti
í rómverska öldungaráðinu. Hann lést árið 59 f.Kr.
Móðir hans hét Atía og var dóttir Júlíu, systur
Júlíusar Caesars. Segja má að með Júlíusi
Caesar hafi tæplega 300 ára
gömul stjórnskipun Róm-
verja, þ.e. lýðveldið, verið
að líða undir Iok. Hann
varð einvaldur í Róm
eftir borgarastyrjöld
árið 44 f.Kr. en það
stóð stutt því hann
var myrtur af öldunga-
ráðinu sama ár. Júlíus
Caesar ættleiddi Gajus
Júlíus Caesar Oktavíanus
eins og hann hét upp frá
því og kom honum á
framfæri í opinberu lífi í
Rómaborg.
I þeirri valdabaráttu sem
átti sér stað eftir dauða Júlí
usar Caesars varð Oktaví-
anus einn af þremur valds-
herrum í rómverska
ríkinu (43 f.Kr.) Hinir tveir voru Markús Antoníus
og Lepídus. Þeir skiptu vesturhluta ríkisins á milli
sín en austurhlutanum réðu enn morðingjar Júlíusar
Caesars, þeir Brútus og Cassíus. Eftir að hafa sigrað
þá við Filippí árið 42 f.Kr. féll austurhlutinn
Antoníusi í skaut en Oktavíanus hélt vesturhluta
ríkisins. A næstu árum vann Oktavíanus sigur á
ýmsum keppinautum sínum, m.a. Lepídusi árið 32
f.Kr. og loks Antoníusi og Kleópötru drottningu
Egypta árið 31 í mikilli sjóorustu við Actium. Þar
með var hann orðinn einvaldur í grísk-rómversku
heimsbyggðinni og náði ríki hans
yfir stór svæði umhverfis
allt Miðjarðarhaf.
Árið 27 f.Kr. gaf
öldungaráðið honum
nafnið Águstus.
Það er nokkurs
konar heiðurstilill
og er komið úr
latínu og merkir
hinn hátignarlegi
eða æruverðugi.
Nafnið hefur
forn, trúarleg
tengsl og er talið
tengjast gömlum
hefðum varðandi spá-
dóma eða véfréttir. Það
áréttar stöðu og völd Oktavían-
usar yfir gjörvallri heimsbyggð-
inni. Þetta ártal er talið marka
upphaf rómverska keisaratímans.