Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1995, Síða 24

Bjarmi - 01.12.1995, Síða 24
VIÐTAL Engkr^ brauð, lijimdi orð og hii i u ieskur m n i iw UTTEKT A KRISTILEGRI UTGAFU I JOLAMANUÐI Við íslendingar teljum okkur vera bókaþjóð. Þegar jólin nálgast eflist bóksala til muna, enda er bókin vinsæl og sjálfsögð jóla- gjöf. Á síðustu vikum hafa útgefendur keppst við að ná athygli almennings í gegnum fjölmiðla til að kynna afurðir sýnar. Bjarmi fór á stúfana og kannaði lítillega útgáfu á kristilegu efni, sem í flestum tilfellum nýtur ekki jafnmikillar athygli og önnur útgáfa. Á undanförnum árum eru það helst Skálholt, útgáfufélag þjóðkirkjunnar, og Fíladelfíuforlag, útgáfufélag hvítasunnumanna, sem hafa staðið í útgáfu á kristilegu efni. Báðar þessar útgáfur reka einnig sérverslanir með kristilegan varning og eru þannig í náinni snertingu við markaðinn. Fleiri aðilar legga vissulega sitt af mörkum. T.d. hefur Saltútgáfan nú vaknað af værum blundi eftir nokkurra ára hvíld, auk þess sem einstaklingar og samfélög senda öðru hverju frá sér bæk- ur og annað kristilegt efni. Bækur Skálholt leggur áherslur á tvær bækur fyrir þessi jól. „Bókin um englana" eftir sr. Karl Sigurbjörnsson er 96 blaðsíður, litprentuð í stóru broti og prýdd fjölda mynda eftir erlenda og innlenda listamenn. Þó svo að flestir þekki englana sem börn verða margir við- skila við þennan þátt trúarinnar er árin líða. Útsöluverð bókarinnar er kr. 2.480,-. Hin bókin frá Skálholti er 100 ára saga Hjálpræðis- hersins á Islandi, sem dr. Pétur Pétursson tók saman. „Með himneskum anni“ er tiltill bókarinnar sem er skrifuð með það fyrir augum að vera aðgengileg leik- mönnum, án þess að slakað sé á fræðilegum kröfum. Fróðleg bók með heimildarlegt gildi á kr. 2.980,-. Fíladelfíuforlag hefur endurútgefið Lifandi orð, sem fyrst kom út fyrir u.þ.b. 20 árum. Lifandi orð er Nýja testamentið yfirfært á daglegt mál af Friðriki Schram. í þessari nýju og endurbættu útgáfu hafa Sálmarnir bæst við. Lifandi orð er í kiljuformi og um 600 blaðsíður. Frá Saltútgáfunni er komin bókin Daglegt brauð. Hún hefur að geyma stuttar hugleiðingar fyrir hvern dag ársins, byggðar á ritningarversum úr Biblíunni. Um er að ræða kjarngóða og bragðmikla fæðu upp á 376 bls. sem á erindi til þeirra sem eru vandlátar um það hvað þeir innbyrða. Daglegt brauð kostar kr. 2.450,-. Frá Fjölskyldufræðslunni er komin bókin „Þykir þér raunverulega vænt um mig". Þar er fjallað um barnauppeldi á kristilegum nótum. Alþjóðleg niet- sölubók sem hlotið hefur mikla viðurkenningu og kostar kr. 2.480,-. Eitthvað er um að einstaklingar standi í kristilegri bókaútgáfu. Slíkt einkaframtak er ávallt virðingar- vert. Sigurbjörn Þorkelsson, framkvæmdastjóri

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.