Bjarmi - 01.12.1995, Síða 25
KRISTNIBOÐ
Gídeonfélagsins, hefur sent frá sér bókina „Ég get
ekki annafi en sagt það sem ég hef séð og heyrt. “
Bókin inniheldur stuttar hugleiðingar og vinisburði
um áhrif Heilagrar ritningar á líf fólks. Ekki er
heldur langt síðan „Það er ég sem sendi þig“, 50 ára
saga Gídeonfélagsins, var gefin út, en sr. Sigurður
Pálsson tók þá bók saman.
Þegar þetta er ritað er von á bók frá forlaginu
Vakningu, en á bak við það fyrirtæki stendur Þórður
Sigurðsson. Bókin er eftir Benny Hinn og ber titil-
inn „Égþarfá kraftaverki að halda."
Barnabækur
„Óskir trjánna", frá Skálholti hefur fengið góðar
viðtökur, enda snyrtileg bók á sanngjörnu verði, kr.
390,-. Sagan fjallar um þrjú tré sent öll hafa vænt-
ingar um framtíð sína. Hlutverk þeirra verður ann-
að, en engu minna, en vonir stóðu til.
Frá Fíladelfíu koma „6 dæmisögur fyrir smáfólk",
sem einnig kosta kr. 390,-. Hér eru á ferðinni
nútíma dæmisögur fyrir 2 - 6 ára börn. Titlarnir
segja margt um innihaldið, t.d. „Blýanturinn og
strokleðrið", „Báturinn og áttavitinn" og „Bíllinn og
bensíndælan". Þessar skemmtilegu bækur eru
einnig fáanlegar 6 saman í pakka á kr. 1990,-.
Lögin eru frumsamin af
félögum hljómsveitar-
innar sem standa sjálfir
að útgáfunni. Þessi norð-
lenski diskur kostar kr.
1990,-.
„Spurðu mig" er nafn á
geisladisk sem gefinn var
út af Fíladelfíu sl. sumar
og er þeirra framlag til
tónlistarútgáfu þetta árið.
Þar er á ferðinni lof-
gjörðarhópur Fíladelfíu
nteð Óskar Einarsson
hjálpræðishermann í
broddi fylkingar.
//Eggjum
dreift í fleiri
körfur"
Geisladiskar
Desembermánuður er góður sölutími tónlistar og
það á ekki sýst við um kristilega tónlist. Nokkuð er
því um útgáfur geisladiska á þessum árstíma.
Einna mesta athygli fær eflaust geisladiskurinn
„Hœrra til þín“ frá Krossgötum. Á honum eru
landskunnir söngvarar með Björgvin Halldórsson í
broddi fylkingar. Útgáfa disksins er jafnframt
fjáröflunarverkefni til byggingar áfangaheimilis fyrir
stúlkur. Verð disksins er kr. 1990,-.
Skálholt hefur gefið út geisladisk af öðrum toga.
Hann ber titilinn „Ég get
sungið af gleði!" og
inniheldur 42 barnasálma
og söngva. Flytjendur eru
900 börn úr 16 barnakórum
við kirkjur og skóla. Frísk-
ur diskur fyrir börnin sem
kostarkr. 1700,-.
Hljómsveitin Narsissa á
Akureyri, sendi á haust-
dögum frá sér geisla-
diskinn „Að komast inn". í
hljómsveitinni er ungt fólk
úr Hvítasunnukirkjunni og
KFUM og K á Akureyri.
Þó svo að útgefendur líti
á starf sitt sem hugsjón leitast þeir við að láta bæk-
urnar og geisladiskana standa undir sér fjárhagslega.
Reksturinn er samt viðkvæmur og dreifa útgefendur
því eggjunum í fleiri körfur. Fíladelfía leggur þunga
áherslu á innflutning á bókurn og geisladiskum,
jafnhliða því að reka verslunina Jötuna. Standa þau
eflaust fremst í sölu á kristilegri tónlist. Skálholt
rekur verslunina Kirkjuhúsið og gefur út tímaritið
Víðförla auk þess sem fyrirtækið gefur út mikið af
starfsgögnum fyrir kirkjuna. Saltútgáfan hefur sl. ár
verið fyrst og fremst í útgáfuþjónustu, þ.e. umbroti,
hönnun og alhliða umsjón með útgáfuverkefnum
annarra. Auk þess er Saltútgáfan í nánu samstarfi við
tímaritið Bjarma.
Sú ólga sem er á bókamarkaðinum nú fyrir jólin,
þar sem útgefendur og verslanir hafa gefið afslætti
„Óþarfi að kristileg
útgáfufyrirtæki komi
með samskonar
bækur á svipuðum
tíma.“ segir
Guðbjartur
Guðbjartsson,
framkvæmdastjóri
Fíladelfíuforlags.
Edda Möller
framkvæmdastjóri
Skálholtsútgáfunnar
hefur orðið var við
aukinn áhuga
almennu forlaganna
á kristilegum bókum
og bókum sem
byggja á kristilegum
viðhorfum. Með
henni á myndinni er
er Hreinn Hákonar-
son, fangaprestur,
sem sæti á í
útgáfuráði hjá
Skálholti.
25