Bjarmi - 01.12.1995, Qupperneq 28
AF VETTVANGI
GyÖa Karlsdóttir
Við áttum öll
sömu hugsjón
FRA HEIMSÞINGI IFES I KENYU
Heimsþing IFES (International feliowship of evangelical students)
var haldiö í Nairóbí í Kenýu dagana 22. júní ■ 3. júií í sumar. í
fyrsta skipti í sögu samtakanna var stórviöburöur af þessu tagi
haldinn í Afríku og vegna aöstæöna varö aö takmarka fjöida þeirra
fuiltrúa sem komu frá hverju iandi. Viö vorum þrír fulltrúar
Kristilegu skóiahreyflngarinnar á íslandi, í hópi 350 þátttakenda frá
yfir 100 löndum.
Hópur stúdenta
og starfsmanna
kristilegra skóla-
hreyfinga í Suöur-
Ameríku með
kynningaratriði á
kvöldsamveru.
Þingið var haldið á ráðstefnustað sem auðugur banki
á, rétt utan við Nairóbí. Þetta var glæsilegur staður, stórt
landflæmi, girt með háum girðingum og stóðu vopnaðir
verðir við hlið á tveimur stöðum. Á svæðinu voru
nokkrar byggingar sem stóðu í hring, kringuni stórt
blómlegt torg. I einni byggingunni var matast, annarri
sofið, þeirri þriðju fóru þingstörfin fram. Þarna var
sundlaug, fótboltavöllur, tennisvöllur, blakvöllur,
hlaupabraut - í stuttu máli, allt sem hugurinn girntist til
íþróttaiðkana. Ég varð að klípa mig í handlegginn og
spyrja sjálfa mig: Er ég raunverulega stödd í Afríku?
Það var þægileg tilfinning fyrir Vesturlandabúa að
dvelja í þessu verndaða umhverfi á þingstaðnum, en
um leið rödd hið innra sem minnti á að handan
girðingarinnar bjó þjóð sem bjó við mjög kröpp kjör.
Yfirskrift þingsins var „One savior, one calling,
one people.“ Á biblíulestrum, í vinnuhópum, á
bænastundum, kvöldvökum - á samverustundum
þingsins í heild, vorum við minnt á þá staðreynd að
við erum bræður og systur í Kristi Jesú, frelsara
okkar. Skoðanamunur, ólíkur bakgrunnur, menning
og efnahagsleg kjör gerðu undur einingarinnar aðeins
meira. Við vorum öll að vinna að sömu hugsjóninni,
- að flytja fagnaðarerindið um Jesú til stúdenta
veraldarinnar. Þarna stóðu Króatar og Serbar hlið við
hlið og lofuðu Guð saman. Hútú- og Tútsímenn
sögðu frá því hvernig þeir hefðu staðið saman í
háskólunum í Rúanda þegar blóðsúlhellingarnar
byrjuðu. Á Irlandi er unnið að því að sameina norður-
írsku skólahreyfinguna og írsku skólahreyfinguna.
Hvítir og svartir vinna saman í Suður-Afríku.
Einingin í Kristi átti sér engin takmörk, engin
landamæri.
Um leið voruni við ólík og auðguðum hvert annað
með mismuninum. Mér fannst einstakt að fylgjast
með gleði Afríkubúanna sem þeim tókst að tjá af svo
mikilli einiægni í söng og dillandi dansi.
Trommusláttur, glaðlegur, marglitur klæðnaður,
skjannahvítar tennurnar sem birtust í breiðu brosi
þeirra endurspeglaði gleðina yfir því að vera
frelsaður frá myrkrinu til Ijóssins.
Á heimsþinginu voru 14 nýjar skóla- og stúdenta-
hreyfingar sem óskuðu eftir aðild að IFES. Þær voru
frá Benin, Burkina Faso, Búrúndi, Kamerún, Chad,
Costa Rica, Ekvator, Eþíópíu, Madagaskar, Malí,
Nígeríu, Panama, Súrinam og Urúguay. Fór fram
stutt kynning á starfi skólahreyfinganna í þessum
nýju aðildarlöndum og var þeim ákaft fagnað og þær
28