Bjarmi - 01.04.1996, Qupperneq 13
MENNiNG OG LISTIR
tónskáld snúa sér að fúgum ef höfuð hans væri fullt af
stefjum sem hljómuðu sem „fúguhráefni“.“
Lewis og börn
Lewis fékk oft spurningar er vörðuðu samskipti hans við
börn. Nú var það vitað að hann átti engin börn sjálfur og
umgekkst mest samkennara sína og aðra rithöfunda,
þ.á.m. John Ronald Reuel Tolkien (1892-1973), höfund
Hringadróttinssögu. Hversdagslega voru samskipti Lewis
við börn engin fyrr en undir það síðasta að hann um-
gekkst drengi bandarísku skáldkonunnar Joy Gresham, þá
Douglas og David.
í bréfi til bróður síns Warren lýsir Lewis börnum göngu-
félaga síns Harwood á eftirfarandi hátt: „Börn hans eru
orðin svo mörg að maður er löngu hættur að þekkja þau í
sundur, ég þekki þau ekki frekar en grís úr stórri þvögu.
Nokkrar hersveitir þeirra fylgdu okkur fyrsta spölinn, en
snéru við eins og höfuðlaus her um leið og við höfðum
lagt úr höfn.“
Hvernig gat þessi fimmtugi piparsveinn orðið vinsæll
barnabókahöfundur?
„Ég býst við að aldur skipti ekki jafnmiklu máli og fólk
heldur. Ákveðnir hlutar af mér eru enn þá 12 ára og ég
held að aðrir hlutar af mér hafi verið orðnir 50 þegar ég
var 12, “ skrifar Lewis í bréfi til ungrar stúlku. Hann skrif-
aðist á við mörg börn og talaði alltaf til þeirra sem
jafningja. Hann leitaði ráða hjá þeim og tók mark á þeim.
Hann mat fólk ekki eftir aldri enda hafa bæði fimmtugir
og 12 ára gaman af því að ferðast til Narnlu.
Elfráöur Kormákur Skúti leggur hér af stað til
Narníu ásamt frændsystkinum sínum Lúsíu
og Játvarði.
Er ferð til Narníu flótti
frá raunveruleikanum?
Ferð til Narníu er ferð til annars
raunveruleika, til alvöruveraldar án ódýrra
lausna. Ævintýraheimur Lewis útilokar
ekki þrætur, efa, baráttu og ósigra heldur
varpar hann nýju ljósi á alla þessa hluti.
Margir hafa fyrst tekið kristna trú alvarlega
eftir ferð til Narníu, eins hefur heimur
kristins manns hlotið dýpri merkingu.
Petta eru meðmæli sem Yndisferðir hafa
fram yfir aðrar ferðaskrifstofur. Gangið þvi
um borð, spennið beltin og njótið ferðar-
innar.
H. E. M.
Aö ofan:
Leiðsögu-
maðurinn C.S.
Lewis.
Aö neöan:
C.S. Lewis sem
barn.
13